Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Vertu með! bæklingurinn er nú til á níu tungumálum

26.10.2021

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) vekja athygli á bæklingi sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Bæklingurinn kom fyrst út á sex tungumálum, fyrr á árinu bættust arabíska og víetnamska við og nú síðast spænska. Önnur tungumál eru íslenska, enska, pólska, tælenska, litháíska og filippseyska.

Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna; upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.

Efnið er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ. 

Smelltu hér til þess að skoða bæklingana.