Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Júlían J. K. Jóhannsson á leið á Heimsleikana 2022

25.11.2021

Júlían J. K Jóhannsson kraftlyftingamaður hefur fengið boð um keppa á Heimsleikunum (World Games) í Alabama næsta sumar.
Heimsleikarnir eru haldnir árið eftir Ólympíuleikana og eru fjölgreinamót þar sem keppt er í greinum sem eru ekki ólympíugreinar. Keppendur verða hugsanlega um 3.500, en keppt er í 34 greinum.
Að mati Júlíans þá átti hann kannski ekki sitt besta mót á HM fyrr í mánuðinum og var hann því í vafa um að hann fengi boð um keppni á Heimsleikunum. Nú þegar það er komið í hús þá ætlar hann að setja allt á fullt við að undirbúa sig fyrir leikana.
ÍSÍ óskar Júlían góðs gengis.

Mynd: kraft.is