Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Hilmar Snær verður fulltrúi Íslands á Paralympics

25.02.2022

 

Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) upplýsti í gær um þátttöku Íslands á Paralympics  sem fram fara dagana 4. -13. mars nk. í Peking.

Fulltrúi Íslands á leikunum verður Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður úr Víkingi en þetta verða hans aðrir leikar. Hilmar Snær keppti á Paralympics í Pyeongchang árið 2018. Hilmar Snær mun keppa í tveimur greinum á leikunum, þ.e. stórsvigi og svigi. Þess má geta að Hilmar Snær náði nýlega frábærum árangri á HM í svigi í Lillehammer í Noregi þar sem hann varð í 5. sæti.

Íslenski hópurinn heldur út til Kína þann 1. mars nk. en keppni í stórsvigi verður 10. mars og keppni í svig þann 12. mars. Leikarnir verða í beinni útsendingu hjá RÚV.

Þórður Georg Hjörleifsson og Einar Bjarnason verða í þjálfarateymi Hilmars í ferðinni og fararstjóri verður Jón Björn Ólafsson íþrótta- og miðlastjóri Íþróttasambands fatlaðra. Að þessu sinni eru hæg heimatökin þegar kemur að því að skipa liðslækni hópsins en það er Jón Örvar Kristinsson og vill einmitt svo vel til að hann er líka faðir Hilmars.

Búist er við tæplega 700 keppendum við leikana frá 49 þjóðlöndum en Ísrael, Azerbaijan og Púertó Ríkó munu öll taka þátt í sínum fyrstu vetrarleikum í sögunni. Peking eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum verður þannig fyrsta borg heimsins til þess að halda bæði sumar- og vetrarleika en sumarleikarnir fóru þar fram síðast árið 2008.

Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Jón Björn Ólafsson íþrótta- og miðlastjóri Íþróttasambands fatlaðra á if@ifsport.is eða í síma 8681061.

Myndir: ÍF/JBÓ.  Með Hilmari á einni myndinni er Þórður Georg þjálfari hans.

Myndir með frétt