Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
30

Elsa Pálsdóttir Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum

08.03.2022

Elsa Pálsdóttir varði í dag Evrópumeistaratitil sinn í klassískum kraftlyftingum í -76kg flokki M3 á Evrópumóti öldunga í klassískum kraftlyftingum sem nú stendur yfir í Vilníus í Litháen.

Hún lyfti 125 – 60 – 155 = 340 kg, vann gull í öllum greinum og var stigahæsta konan í M3.

Frábær árangur á sjálfum baráttudegi kvenna.

ÍSÍ óskar Elsu innilega til hamingju.

Mynd: kraft.is