Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Íþróttahreyfingin fær 500 m.kr. frá ríkinu

13.04.2022

 

Sú ánægjulega tilkynning barst frá mennta- og barnamálaráðuneytinu seint í gær að ríkisstjórnin hafi ákveðið að styðja íþróttahreyfinguna með 500 m.kr. fjárframlagi sem mótvægisaðgerð gegn tekjutapi af völdum heimsfaraldurs.

Útfærsla úthlutunar og framkvæmdar verður unnin í samstarfi við ÍSÍ. Sambandinu verður falið að óska eftir umsóknum um stuðning vegna fjárhagslegra afleiðinga kórónuveirunnar á einingar íþróttahreyfingarinnar. Sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög, íþrótta- og ungmennafélög og deildir þeirra geta sótt um stuðning. Umsækjendur þurfa að hafa orðið fyrir tekjutapi eða kostnaðarauka vegna íþróttaviðburða sem þurfti að fella niður eða breyta verulega vegna samkomutakmarkana af völdum COVID-19. Sýna þarf fram á áhrif á rekstur og starf. Við úthlutun styrkja verður tekið tillit til annars stuðnings sem umsækjendur hafa notið. Kröfur til umsókna verða sambærilegar og voru við úthlutun stuðnings með sértækum hætti á árinu 2020. 

Sjötíu prósent fjármagnsins rennur til sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga og 30% til íþróttafélaga þar sem sérsambönd, héraðssambönd og íþróttabandalög hafa ekki fengið bætt tjón með sama hætti og íþróttafélög.

Nánari upplýsingar um tilhögun umsóknaferils og tímaramma verða birtar síðar.

Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ: Starfsemi íþróttahreyfingarinnar varð fyrir mörgum skakkaföllum af völdum kórónuveirufaraldursins síðustu árin, miklu tekjufalli og skertum möguleikum á öflun tekna.  Rikisvaldið kom með rausnarlegum hætti til móts við íþróttahreyfinguna með fjárframlagi sem úthlutað var á vormánuðum 2020 og aftur í mars 2021 til að mæta því tjóni sem íþróttahreyfingin hafði orðið fyrir vegna kórónuveirufaraldursins á þeim tíma. Allt árið 2021 reyndist svo íþróttahreyfingunni einnig erfiður tími og nú hefur ríkið stigið enn eitt skrefið í stuðningi við starf hreyfingarinnar með veglegu fjárframlagi.

Íþróttahreyfingin hefur í gegnum þennan erfiða tíma haldið úti metnaðarfullu starfi, eftir því sem gildandi reglur hafa leyft, og sýnt fádæma þrek og vilja til þess að koma sterk undan faraldrinum. Viðurkenning ríkisstjórnarinnar á mikilvægi hreyfingarinnar fyrir samfélagið hefur gríðarlega jákvæð áhrif og gefur öllum sem koma að starfi hreyfingarinnar aukinn kraft til góðra verka.”

Frétt um málið af heimasíðu stjórnarráðsins.

Myndir með frétt