Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
2

Ársþing HSÍ

04.05.2022

 

Ársþing Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) fór fram í Origo-höllinni að Hlíðarenda 30. apríl sl. 76 manns sátu þingið, þar af 50 þingfulltrúar frá aðildarfélögunum. Í upphafi þings var Davíðs B. Gíslasonar varaformanns HSÍ minnst en hann lést fyrr á árinu aðeins 52 ára að aldri eftir snarpa baráttu við krabbamein.

Velta HSÍ á árinu var tæpar 319 milljónir kr. en tap sambandsins var 5,8 milljónir. Tap sambandsins skýrist einkum af auknum kostnaði vegna Covid-19 faraldursins.

Guðmundur B. Ólafsson á eitt ár eftir af sínu kjörtímabili sem formaður HSÍ. Þau Arnar Þorkelsson (gjaldkeri), Guðríður Guðjónsdóttir (landsliðsnefnd kvenna) og Kristín Þórðardóttir (mótanefnd) voru endurkjörin í stjórn til næstu tveggja ára. Reynir Stefánsson sem gegnt hefur embætti formanns dómaranefndar tekur við sem varaformaður sambandsins til eins árs og Kristján Gaukur Kristjánsson var kjörinn nýr formaður dómaranefndar. Fyrir í stjórn voru þau Jón Viðar Stefánsson (markaðsnefnd) og Páll Þórólfsson (landsliðsnefnd karla), Inga Lilja Lárusdóttir (fræðslu- og útbreiðslunefnd). Þá voru kjörin í varastjórn þau Alfreð Örn Finnsson, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Ragnar Lárus Kristjánsson en Ragnar Lárus kemur nýr inn

Í lok þings var eftirfarandi tillaga að um áskorun á stjórnvöld vegna þjóðarhallar samþykkt:

„65 ársþing HSÍ haldið í Valsheimilinu 30. apríl 2022 samþykkir að hvetja stjórnvöld, ríki og Reykjavíkurborg til að ljúka samningum nú þegar um byggingu þjóðarhallar. Eins og kunnugt er þá er ekkert íþróttahús hér á landi sem uppfyllir lágmarksskilyrði til þátttöku í alþjóðlegum keppnum og ekki virðist skorta viljann hjá stjórnvöldum til að uppfylla þessi skilyrði. Dráttur á ákvörðunartöku er því óskiljanlegur. Ársþing HSÍ hvetur stjórnvöld til að hætta störukeppni varðandi kostnaðarskiptingu og ljúka nú þegar samningum um byggingu þjóðarhallar. Með því sýna stjórnvöld í verki raunverulegan stuðning við framgang handknattleiks á Íslandi.“

Hafsteinn Pálsson, 2. varaforseti ÍSÍ, Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ mættu fyrir hönd ÍSÍ á þingið ásamt Andra Stefánssyni framkvæmdastjóra ÍSÍ  sem flutti ávarp við þingsetningu.

Ársskýrsla HSÍ 2021.