Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Heiðursfélagi ÍSÍ hlýtur nýjan sæmdartitil

07.06.2022

 

Guðmundur Kr. Jónsson, Heiðursfélagi ÍSÍ, var nýlega kjörinn Heiðursfélagi Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ). Tilkynnt var um kjörið á 75 ára afmælismóti FRÍ sem haldið var á Selfossi á dögunum. Í frétt á heimasíðu FRÍ er að finna eftirfarandi samantekt um helstu störf Guðmundar:

„Guðmundur er einstaklega öflugur félagsmálamaður. Hann gegndi formennsku í frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss árin 1968 - 1979 og í Umf. Selfoss 2014 - 2018 en þess á milli starfaði Guðmundur m.a. sem vallarstjóri og framkvæmdastjóri Umf. Selfoss. Ekki aðeins sinnti Guðmundur þessum föstu ábyrgðarstörfum heldur hefur hann veri óþreytandi sem sjálfboðaliði í margvíslegum frjálsíþróttaverkefnum um alla tíða.

Í fyrirlestri sínum „Frá Selfossi að Ólympíugulli” sagði Vésteinn Hafsteinsson þjálfari frá upphafi síns frjálsíþróttaferils í Grýlupottahlaupinu á Selfossi og þakkaði mikið þeim sem að því stóðu og nefndi sérstaklega, bræðurna Sigurð og Guðmund Kr. Jónssyni. Guðmundur ræsti hlaupið og hvatti iðkendur áfram árið 1969 þegar Vésteinn var að taka sín fyrstu skref í frjálsum og keppa þar m.a. við vin sinn og einn Jónssoninn enn, Kára Jónsson. Það var því einkar viðeigandi að Guðmundur Kr. skyldi einnig ræsa Grýlupottahlaupið sem fram fór að morgni afmælismótsdagsins. Stórmótið Selfoss Classic naut raunar einnig starfa Guðmundar sem lagði út kastgeira og aðstoðaði á ýmsan annan máta.

Félagsstörf Guðmundar Kr. ná sannarlega út fyrir Selfoss og verður að einnig að minnast framgöngu hans sem eins af helstu leiðtogum Héraðssambandsins Skarphéðins á liðinni öld. Guðmundur var kosinn formaður HSK árið 1981, stóð í stafni í átta ár og átti á þeim tíma mikinn þátt í miklum uppgangi HSK á frjálsíþróttasviðinu. Sú umgjörð og það starf sem Guðmundur átti þátt í að móta á sambandssvæðinu var góður jarðvegur fyrir jafnt íþróttamenn og leiðtoga til að eflast. Að því býr frjálsíþróttahreyfingin sannarlega enn í dag.”

Til viðbótar má geta þess að Guðmundur var afburða spretthlaupari og stökkvari. Hann vann mörg glæst afrek bæði á héraðs- og landsvísu. Guðmundur átti sæti í stjórn og varastjórn ÍSÍ um tíma og tekur enn virkan þátt í starfi hreyfingarinnar með ýmsum hætti.

ÍSÍ óskar Guðmundi hjartanlega til hamingju með þessa góðu og verðskulduðu viðurkenningu.