Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Perla Sól Evrópumeistari 16 ára og yngri í golfi

29.07.2022

 

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur vann það frábæra afrek að sigra á Evrópumeistaramóti 16 ára og yngri, European Young Masters, sem fram fór í Finnlandi í vikunni.

Samkvæmt frétt á golf.is þá tryggði Perla sér sigurinn á 18. holu en hún sigraði með minnsta mun og átti eitt högg fyrir lokaholuna. Sigur Perlu er sögulegur þar sem þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kvenkylfingur sigrar á þessu móti. Yfir 70 keppendur á mótinu voru 0 eða lægri forgjöf. Lægsta forgjöfin var -5 og 30 keppendur voru með -3 eða lægra í forgjöf á þessu móti.

Ómar Halldórsson, GA, fagnaði sigri á Evrópumeistaramóti unglinga árið 1997 og hafa því íslenskir kylfingar sigrað í báðum flokkum mótsins. Perla Sól, sem er fædd árið 2006, verður 16 ára í haust. Hún lék hringina þrjá á 2 höggum undir pari Linna vallarins, þar sem að mótið fór fram. Hún lék samtals á 214 höggum (72-72-70). Þrír keppendur voru jafnir á -1 samtals.

Fjórir keppendur frá Íslandi tóku þátt í mótinu, sem er fyrir kylfinga sem eru 16 ára og eldri. Það voru ásamt Perlu Sól þau Skúli Gunnar Ágústsson, Veigar Heiðarsson og Helga Signý Pálsdóttir. Þau enduðu í 14. sæti í liðakeppninni.

Alls tóku 117 keppendur frá 31 þjóð þátt í Evrópumeistaramótinu. Fleiri fréttir af mótinu er að finna á golf.is

Myndir/GSÍ(golf.is)

Myndir með frétt