Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Göngum í skólann hefst 7. september

19.08.2022

 

ÍSÍ og samstarfsaðilar munu ræsa hvatningarverkefnið Göngum í skólann miðvikudaginn 7. september nk. 

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Átaksverkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 78 skólar skráðu sig til leiks árið 2021.

Hér má finna myndbandið „Öruggasta leiðin í skólann” frá Samgöngustofu.

Heimasíða Göngum í skólann.

Myndir með frétt