Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Fjör í Melaskóla í morgun

07.09.2022

 

Verkefnið Göngum í skólann var formlega sett í Melaskóla í morgun, að viðstöddum góðum gestum.

Harpa Reynisdóttir, skólastjóri bauð nemendur og gesti velkomna. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands tók síðan við, flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra tók fyrstur til máls og upplýsti að hann hafi sjálfur verið nemandi í Melaskóla og eigi þaðan dásamlegar minningar. Einnig fór hann yfir mikilvægi þess að hreyfa sig daglega til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Sigurður Ingi Jóhannssson, innviðaráðherra til máls og hvatti hann nemendur til að taka tillit til fólks og farartækja í umferðinni, bæði á gangstéttum og þegar farið er yfir gangbrautir. Hann hvatti nemendur til að vera duglega að hjóla eða ganga í skólann og draga foreldrana með sér. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri til máls og minnti nemendur á að lögreglan er til staðar fyrir alla, er vinur allra og vinnur af virðingu fyrir alla. Hún hvatti nemendur til að vera góðar fyrirmyndir og að hjóla ekki hjálmlaus. Að lokum lék Lalli töframaður listir sínar fyrir viðstadda sem skemmtu sér konunglega áður en aðstandendur verkefnisins, ráðherrar, ríkislögreglustjóri, nemendur, starfsfólk og aðrir gestir gengu verkefnið formlega af stað.

Meginmarkmið verkefnisins Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Til viðbótar, að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Verkefnið Göngum í skólann hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 5. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og barnamálaðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Hrönn Guðmundsdóttir hjá ÍSÍ, netfang hronn@isi.is / sími: 692-9025. Vefsíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is

Myndir frá setningunni er að finna hér.

Skráning skóla í verkefnið.