Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Skilafrestur umsókna í Íþróttasjóð er 3. október nk.!

16.09.2022

Rannís hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  • Fræðsluverkefna um gildi hreyfingar fyrir alla.
  • Fjölbreytt verkefni sem hvetja ungt fólk sérstaklega til að taka þátt og hreyfa sig reglulega.
  • Íþróttarannsókna.
  • Verkefna samkvæmt 13. grein íþróttalaga.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur. Vakin er athygli á því að sami umsækjandi getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarflokki.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi fyrir kl. 15:00, mánudaginn 3. október 2022. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, netfang: andres.petursson@rannis.is, sími 699 2522.

ÍSÍ hvetur sambandsaðila sína og íþrótta- og ungmennafélög innan þeirra vébanda til að sækja um styrki úr sjóðnum til verkefna sem falla undir ofangreinda upptalningu.