Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
15

HJÓLUM Í HÁSKÓLANN 22. SEPTEMBER - 6. OKTÓBER

22.09.2022Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Stúdentaráð Háskóla Íslands (HÍ) standa fyrir sameiginlegu hjólaátaki nemenda Háskóla Íslands dagana 22. september.- 6 október. Í átakinu er efnt til keppni milli nemendafélaga skólans.

Átakið Hjólað í skólann hefst sama dag og evrópska samgönguvikan, en markmið samgönguvikunnar er að kynna samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa góð áhrif á umhverfið. Fyrirmynd Hjólað í skólann er árlegt átak ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, sem haldið er í maí ár hvert og er mörgum starfsmönnum HÍ kunnugt. Nú eru það nemendur HÍ sem ætla að keppa sín á milli og er markmiðið að fá alla til að hvíla bílinn og ferðast með vistvænum hætti til og frá skólanum. Í átakinu er lögð áhersla á umhverfisvænan, heilsusamlegan og samgöngumáta til og frá HÍ. Enn fremur er átakinu og keppninni ætlað að styrkja jákvætt og heilbrigt félagslíf í Háskóla Íslands.