Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Jakob Jóhann hlýtur viðurkenningu frá ÍSÍ

02.12.2022

 

Íþrótta- og Óympíusamband Íslands veitti Jakobi Jóhanni Sveinssyni viðurkenningu á afmælishófi Samtaka íslenskra ólympíufara þann 1. desember sl. Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti ÍSÍ afhentu Jakobi viðurkenningu fyrir að hafa keppt á fernum Ólympíuleikum. Jakob tók þátt í Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000, í Aþenu 2004, Peking 2008 og að lokum í London 2012.

Jakob Jóhann er einn af fimm einstaklingum sem hafa keppt á fjórum Ólympíuleikum fyrir hönd Íslands. Aðrir í þessum fámenna hópi eru; Guðmundur Gíslason (sund), Vésteinn Hafsteinsson (frjálsíþróttir), Bjarni Friðriksson (júdó) og Kristinn Björnsson (skíði).