Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Málþing um keppnisíþróttir einstaklinga með þroskahamlanir og einhverfu

07.02.2023

 

Laugardaginn 18. febrúar nk. mun Íþróttasamband fatlaðra ásamt Háskólanum í Reykjavík standa fyrir málþingi um keppnisíþróttir einstaklinga með þroskahamlanir og einhverfu. Málþingið verður haldið í Háskólanum í Reykjavík og er dagskráin hér fyrir neðan. Málþingið verður öllum opið og ókeypis aðgangur. Hlekkur á skráningu er hér fyrir neðan en nauðsynlegt er að staðfesta skráningu fyrir 15.febrúar. 

Skráning hér

Eins og áður sagði er málþingið opið öllum en sérstaklega ætlað þeim sem starfa með íþróttafólki með þroskahömlun og einhverfu. Fjallað verður um þær mismunandi keppnir sem í boði eru bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Farið verður í gegnum leiðbeiningar um hvernig best er að þjálfa einstaklinga með þroskahömlun og einhverfu. Þá verða hópumræður í lokin um hvert við getum stefnt og hvernig hægt sé að læra hvert af öðru. 

Málþingið fer fram í stofu M122 í Háskólanum í Reykjavík.

Dagskrá:

13:00  Setning málþings. Ingi Þór Einarsson, HR
13:05  Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, ÍF og Ingi Þór Einarsson, HR
Hvaða íþróttakeppnir eru í boði innanlands fyrir einstaklinga með þroskahamlanir og einhverfu?
Hvaða skilyrði eru fyrir þátttöku á þessum mótum?
13:20 Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, ÍF og Ingi Þór Einarsson, HR
Hvaða íþróttakeppnir eru í boði á alþjóðlega fyrir einstaklinga með þroskahamlanir og einhverfu?                           
Alþjóðasamtök; SPECIAL OLYMPICS, VIRTUS og IPC
13:45  Ingi Þór Einarsson, HR
Hvaða skilyrði eru fyrir þátttöku á þessum mótum?                             
Flokkunarkerfi;  SPECIAL OLYMPICS ,  VIRTUS  og  IPC

14:30     KAFFIHLÉ

14:45 Ingi Þór Einarsson og Gunnar Ingi Garðarsson og Snorri Örn Birgisson, nemar í HR
Hvernig er best að þjálfa einstaklinga með þroskahamlanir og einhverfu
15:15 Hópvinna.   
Hópstjórar; Ingi, Gunnar og Snorri.
Umræður í hópum um hvað við getum gert betur og hvernig við getum lært hvert af öðru.
16:00  Allir
Samantekt og umræður um næstu skref
16:30  Lok málþings

Mynd/ÍF