Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
5

Syndum saman í nóvember

01.11.2023

 

Syndum, landsátak í sundi var ræst með formlegum hætti í Sundlaug Kópavogs í morgun í þriðja sinn. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Þeir metrar sem landsmenn synda, á meðan á átakinu stendur, safnast saman og á forsíðu www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland.

Ávörp við setninguna fluttu Hafsteinn Pálsson, úr framkvæmdarstjórn ÍSÍ, Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Hafsteinn setti átakið með formlegum hætti og benti á kosti þess að hreyfa sig og nýta sundlaugarnar til þess.

Björn sagði frá skemmtilegu verkefni innan Syndum, en í ár er ætlunin að setja kastljós á skólasund grunnskóla og tengja það við Ólympíuleikana í París 2024. Sundsambandið verður með tvo fulltrúa sem fara á Ólympíuleikana í París á næsta ári, þau Anton Svein Mckee og Snæfríði Sól Jórunnardóttur. Leiðin til Parísar frá Íslandi er 2.246 km og ætlunin er að fá grunnskólanemendur í skólasundi til að synda með táknrænum hætti sem samsvarar leiðinni til Parísar. Nokkrar sundlaugar munu fá heimsókn frá Antoni Sveini.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs tók svo til máls og tók fram hvað þau væru heppin í Kópavogi að eiga þessar frábæru sundlaugar. Hún var stolt af fólkinu sem kæmi í laugarnar jafnvel á hverjum degi til að bæta sína heilsu, því sund væri frábær leið til lýðheilsu. Hún var líka afar stolt af fólkinu sem skráði metrana sína inn í Syndum á síðasta ári, sem setti Sundlaug Kópavogs í efsta sæti á síðasta ári með yfir 1.900km synta.

Sundgarpar Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur hjá Vatnsþreki busluðu svo átakið í gang.

Munum eftir því hvað sund er frábært og verum með! SKRÁÐU ÞIG HÉR.

Nánari upplýsingar má finna á syndum.is.

Myndir með frétt