Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
5

Gunnar Alexander Huseby hefði orðið 100 ára

06.11.2023

 

Gunnar Alexander Huseby, frjálsíþróttamaður, fæddist 4. nóvember 1923 og hefði orðið 100 ára um helgina, en hann lést 28. maí 1995. Hann hóf ungur að æfa bæði knattspyrnu og frjálsíþróttir og var mjög fjölhæfur. Á drengjamóti ÍSÍ sumarið 1940, þegar hann var 16 ára, tók hann þátt í 9 greinum af þeim 12 sem keppt var í. Þar sigraði hann í langstökki, hástökki, kúluvarpi, kringlukasti og 400 m hlaupi og setti drengjamet í báðum síðasttöldu greinunum.

Síðar einbeitti Gunnar sér að kastgreinum, einkum kúluvarpi og kringlukasti og setti fjölda Íslandsmeta. Sumarið 1944 kastaði hann kúlu 15,50 m, sem var fjórða lengsta kast í heiminum það árið en Gunnari gáfust fá tækifæri á að etja kappi við erlenda íþróttamenn á þessum árum vegna heimsstyrjaldarinnar.

Á Evrópumeistaramótinu í Osló 1946 keppti Gunnar í kúluvarpi og sigraði með yfirburðum. Þá var hann á 23. aldursári. Kastaði hann þar kúlunni 15,56 metra eða 30 cm lengra en næsti maður. Fyrr þetta sumar hafði hann sett Íslandsmet bæði í kúluvarpi og kringlukasti. Á Evrópumeistaramótinu í Brussel 1950 varði hann Evrópumeistaratitil sinn – eini íslenski frjálsíþróttamaðurinn sem náð hefur þeim árangri. Varpaði hann þar kúlunni 16,74 metra sem var nýtt Íslands-, Norðurlanda- og Evrópumet og lengsta kast hans á ferlinum. Þetta sigurkast var nær hálfum öðrum metra lengra en kast silfurverðlaunahafans og þetta Íslandsmet hans stóð í 17 ár. Sama ár setti hann einnig Íslandsmet í kringlukasti, 50,13 m sem stóð í mörg ár.

Gunnar var afar vinsæll, dáður og eftirsóttur íþróttamaður, ekki bara hér á landi heldur einnig á Norðurlöndum og víða í Evrópu. Var honum boðið að keppa víða um heim. Alls varð Gunnar á sínum ferli tíu sinnum Íslandsmeistari í kúluvarpi, sex sinnum í kringlukasti og tvisvar í sleggjukasti.  

Gunnar Alexander Huseby var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á 72. Íþróttaþingi ÍSÍ þann 18. apríl árið 2015.  Hér má finna frétt um Gunnar þegar hann var tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ.  

Myndir með frétt