Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
28

Er pláss fyrir öll í íþróttum?

08.01.2024

 

Reykjavíkurleikarnir eða Reykjavík International Games (RIG) verða haldnir 25.- 29. janúar og 1. -4. febrúar nk.  Ráðstefna í tengslum við leikana verður haldin í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 25. janúar 2024 og verður þemað inngilding í íþróttum.  Yfirskrift ráðstefnunnar er: Er pláss fyrir öll í íþróttum?

Á ráðstefnunni verða sex pallborð þar sem fatlað íþróttafólk, hinsegin og kynsegin íþróttafólk, íþróttafólk af erlendum uppruna 
og aðrir sérfræðingar segja sínar reynslusögur, hvað hefur verið gert vel og hvernig íþróttahreyfingin getur gert betur svo að allir einstaklingar upplifi sig velkomna.
 
Frekari upplýsingar eru á vefsíðu ráðstefnunnar og á Facebook viðburði ráðstefnunnar

Ráðstefnan er haldin í samvinnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), Háskólans í Reykjavík, Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) og Reykjavíkurleikanna.  


DAGSKRÁ:
09:00 - Setning ráðstefnu

09:10 - 10:50 - Fatlað íþróttafólk (fer fram á íslensku)

11:10 - 12:50 - Hinsegin íþróttafólk (fer fram á íslensku)

13:30 - 15:10 - Íþróttafólk af erlendum uppruna (fer fram á ensku)

15:20 - Ráðstefnu lýkur


Þeir aðilar sem ekki eiga heiman gengt á ráðstefnuna geta keypt sig inn í streymi. Nánari upplýsingar koma um það síðar.

Myndir með frétt