Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
27

Eyrún Erla og Þórdís Helga kepptu í stórsvigi í Gangwon í dag

23.01.2024

 

Keppni kvenna í stórsvigi á Ólympíuleikum ungmenna er lokið en þar átti Ísland tvo keppendur, þær Eyrúnu Erlu Gestsdóttur og Þórdísi Helgu Grétarsdóttur. Eyrún Erla var með rásnúmer 53 en Þórdís Helga 56 af þeim 79 keppendum sem hófu keppni.

Eyrún hóf fyrri ferðina vel en fór á innra skíðið á flatanum og féll og náði því miður ekki að ljúka keppni. Þórdís var í 31. sæti eftir fyrri ferðina. Hún missti mikinn tíma í seinni ferðinni sem hún kláraði þó með sóma og endaði í 29. sæti. Einungis 43 luku báðum ferðum, af þeim 79 sem hófu keppni.

Það voru mjög góðar aðstæður á keppnissvæðinu í dag þó að kuldinn hafi verið mikill, heiðskírt, sól og flott færi og brautin hélt vel. Það stefnir einnig í flottan dag á morgun þegar strákarnir keppa í stórsvigi. Þar eigum við einn keppanda, Dag Ými Sveinsson sem er með rásnúmer 59 en það eru 79 keppendur sem hefja keppni. Fyrri ferðin byrjar kl.10:00 á staðartíma en kl.01:00 á íslenskum tíma. Dagur mun starta um kl.01:45/01:50 á íslenskum tíma.

Hér er slóð á tíma keppenda í stórsviginu á morgun, fyrir þá sem vilja fylgjast með:

Youth Olympic Winter Games Gangwon/Jeongseon High 1 (KOR) (fis-ski.com)  

Keppni í snjóbrettum hefst á morgun miðvikudag, 24. janúar. Því miður meiddist Júlíetta Iðunn Tómasdóttir, keppandi á snjóbrettum, á æfingu í dag og mun hún því ekki ná að keppa á leikunum. Það verður því enginn íslenskur keppandi í snjóbrettum á þessum leikum.

Svig karla og kvenna verður svo 25. janúar.

Fréttasíða IOC af leikunum.

Heimasíða Skíðasambands Íslands.

Myndir með frétt