Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
27

Heiðrun á Héraðsþing HSK í Árnesi

19.03.2024

 

Góð mæting var á 102. Héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) sem  haldið var í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi á fimmtudag, 14. mars.

Breyting varð á stjórn HSK þegar Olga Bjarnadóttir, sem sæti hefur átt í varastjórn HSK frá árinu 2016, gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en hún var á síðasta ári endurkjörin í stjórn ÍSÍ og tók þá við embætti 2. varaforseta ÍSÍ. Guðrún Ása Kristleifsdóttir úr Umf. Hvöt var kosin ný í varastjórn. Að öðru leyti er stjórn HSK 2024 skipuð eftirfarandi meðlimum:

Guðríður Aadnegard formaður, Guðmundur Jónasson gjaldkeri, Anný Ingimarsdóttir ritari, Helgi S. Haraldsson varaformaður og Jón Þröstur Jóhannesson meðstjórnandi. Varastjórn skipa Gestur Einarsson, Guðrún Ása Kristleifsdóttir og Lárus Ingi Friðfinns Bjarnason.

Eitt nýtt félag sótti um aðild að sambandinu frá síðasta þingi, Judofélag Suðurlands, sem stofnað var 5. mars 2023. Þingið samþykkti umsókn félagsins og nú eru  aðildarfélög sambandsins 54 talsins. Vegleg myndskreytt ársskýrsla HSK kom út á héraðsþinginu og hana má sjá á heimasíðu HSK, www.hsk.is

Val á íþróttakarli HSK og íþróttakonu HSK 2023 var kunngjört á þinginu og voru það Sigurjón Ægir Ólafsson, Íþróttafélaginu Suðra, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Golfklúbbi Selfoss, sem sköruðu fram úr að þessu sinni.  

HSK veitti nokkur sérverðlaun á þinginu. Skeiðamaðurinn Ingvar Garðarsson var valinn öðlingur ársins hjá HSK, körfuknattleiksdeild Umf. Þórs hlaut foreldrastarfsbikar HSK, Hestamannafélagið Jökull hlaut unglingabikar HSK og Umf. Selfoss  var stigahæsta félagið í heildarstigakeppni HSK, þar sem árangur í öllum HSK mótum sambandsins telur.

Þórey Edda Elíasdóttir, 1. varaforseti ÍSÍ, mætti fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ og heiðraði fjóra einstaklinga fyrir góð störf í þágu íþróttanna. Lárus Ingi Friðfinns Bjarnason úr Hamri og stjórnarmaður í HSK var sæmdur Gullmerki ÍSÍ og Gissur Jónsson frá Umf. Selfoss og hjónin Þórdís Bjarnadóttir úr Íþr.f. Suðra og Ófeigur Ágúst Leifsson frá Íþr.f. Suðra og Umf. Selfoss sæmd Silfurmerki ÍSÍ. ÍSÍ þakkar þeim öllum góð störf og óskar þeim innilega til hamingju með viðurkenningarnar.  Mynd við þetta tilefni var tekið; f.v. Lárus Ingi Friðfinns Bjarnason, Ófeigur Ágúst Leifsson, Þórdís Bjarnadóttir, Gissur Jónsson og Þórey Edda Elíasdóttir.

Myndir/HSK

Myndir með frétt