Ellert B. Schram - 85 ára
.jpg?proc=400x400)
Okkar kæri Ellert B. Schram, Heiðurforseti ÍSÍ, er 85 ára í dag.
Ellert var forseti ÍSÍ frá árinu 1990 til ársins 2006 og stýrði sambandinu vel og örugglega í gegnum miklar breytingar þegar Íþróttasamband og Ólympíunefnd Íslands voru sameinuð í Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Ellert var formaður Knattspyrnusambands Íslands 1973 - 1989 og sat í framkvæmdanefnd Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) 1982 - 1986 og aftur 1990 - 1994, svo fátt eitt sé nefnt af hans fjölmörgu störfum í þágu íþróttanna.
Ellert hefur verið mjög virkur þátttakandi í íþróttahreyfingunni alla tíð og eftir að hann hætti í embætti forseta ÍSÍ þá hefur hann sem Heiðursforseti ÍSÍ tekið virkan þátt í viðburðum á vegum sambandsins. Síðustu ár hefur hann ekki getað verið virkur í starfinu sökum heilsubrests og söknum við hans úr starfinu enda hrókur alls fagnaðar.
Framkvæmdastjórn og starfsfólk ÍSÍ sendir Ellert og fjölskyldu hans allri hjartanlegar hamingjuóskir í tilefni dagsins. Hamingjuóskunum fylgja allar góðar óskir frá vinum hans og samferðarfólki í Laugardalnum.