Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Erna Héðinsdóttir hlýtur silfurstjörnu EWF

28.10.2024

 

Erna Héðinsdóttir hlaut um helgina, fyrst Íslendinga, silfurstjörnu Evrópska lyftingasambandsins (EWF), en Erna er alþjóðlegur lyftingadómari og situr jafnframt í stjórn Lyftingasambands Íslands (LSÍ). Viðurkenninguna fékk hún afhenda á Evrópumeistaramóti ungmenna sem haldið var í Raszyn í Póllandi.

Erna varð einnig í sumar fyrsti íslenski lyftingadómarinn til að dæma á Ólympíuleikum þegar hún dæmdi í París en Erna hefur verið iðin við að dæma síðustu ár og dæmt á fjölda móta hjá Evrópska lyftingasambandinu. Viðurkenninguna fær hún fyrir frábært starf á Ólympíuleikunum sem og fyrir ómetanlegt framtak við framgöngu lyftinga á Íslandi. Þess má geta að það eru fáir sem hljóta þessa viðurkenningu, einungis einn til þrír einstaklingar á hverju ári og því mikill heiður fyrir Ernu.  

ÍSÍ óskar Ernu innilega til hamingju með viðurkenninguna!

Myndir/LSÍ

Myndir með frétt