Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
26

Fjölmennt héraðsþing HSK í Aratungu

04.04.2025

 

Stjórn HSK lagði fram 11 tillögur á þinginu sem allar voru samþykktar en þinggögn eru aðgengileg á heimasíðu HSK hér.

Allir stjórnarmenn HSK gáfu kost á sér áfram og var stjórnin endurkjörin með lófataki. Íþróttakona og íþróttakarl HSK 2024 voru verðlaunuð á þinginu en það voru þau Perla Ruth Albertsdóttir, landsliðskona í handbolta, og Hákon Þór Svavarsson, skotíþróttamaður og ólympíufari.

Hvatningarverðlaun HSK voru veitt í fyrsta sinn á þinginu en þau hlaut Hestamannafélagið Sleipnir fyrir verkefnið Félagshesthús.HSK heiðraði þrjá einstaklinga á héraðsþinginu. Björn Bjarndal Jónsson, fyrrverandi formaður HSK og UMFÍ, var sæmdur gullmerki sambandsins og Guðni Sighvatsson, gjaldkeri glímuráðs HSK, var sæmdur silfurmerki HSK.  Þá var Jóhanna M. Hjartardóttir í Þorlákshöfn valin öðlingur ársins.UMFÍ heiðraði fjóra einstaklinga úr Bláskógabyggð, en Geirþrúður Sighvatsdóttir, Guðný Rósa Magnúsdóttir, Sveinn Sæland og Helgi Kjartansson voru öll sæmd starfsmerki UMFÍ.

Kjartan Lárusson, frá Ungmennafélagi Laugdæla var sæmdur heiðurskrossi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, en það er æðsta heiðursmerki ÍSÍ. Þá sæmdi ÍSÍ Þorbjörgu Vilhjálmsdóttur, Íþróttafélaginu Suðra, með gullmerki ÍSÍ. Nánar má lesa um heiðranir þeirra Kjartans og Þorbjargar í frétt ÍSÍ hér.


Myndir með frétt