„Heilmikið sem við getum nýtt okkur“

Yfir 400 íþróttamenn og fulltrúar frá um 100 íþróttasamtökum um allan heim sóttu Alþjóðlegu íþróttamannaráðstefnuna (IAF) sem haldin var í Lausanne í Sviss dagana 11.-12. júní. Þar voru málefni íþróttafólks í alþjóðlegu samhengi rædd, sem og helstu áskoranir og tækifæri. Anton Sveinn McKee, Ólympíufari og fyrrum afreksmaður í sundi, sótti ráðstefnuna fyrir hönd Íþróttamannanefndar ÍSÍ.
„Þetta var frábært tækifæri fyrir mig til að tengjast leiðtogum innan íþróttahreyfingarinnar og læra frá öðrum íþróttamannanefndum hvernig best er að styðja við íþróttafólk í gegnum íþróttaferilinn. Það er heilmikið sem ég tek með mér frá Lausanne sem við í Íþróttamannanefnd ÍSÍ getum nýtt okkur til að efla rödd íslensks íþróttafólks,“ segir Anton Sveinn.
Á ráðstefnunni var meðal annars rætt um það hvernig meðlimir íþróttamannanefnda geta talað máli íþróttamanna, leiðir til að styðja íþróttafólk að keppnisferli loknum, lyfjanotkun í íþróttum, öryggi íþrótta og geðheilbrigði, og réttindi og ábyrgð íþróttafólks.
Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), hélt sitt síðasta erindi sem forseti og undirstrikaði hann mikilvægi samstöðu og samvinnu, og að íþróttahreyfingin standi gegn hatri og mismunun. Bach mun láta af embætti þann 23. júní, á Alþjóðlega ólympíudeginum. Kirsty Coventry var í mars kjörin næsti forseti IOC en Coventry er fyrsta konan til að gegna embættinu.
Ný íþróttamannanefnd ÍSÍ var kjörin þann 30. apríl síðastliðinn en í henni sitja, auk Antons Sveins, Sigrún Agatha Árnadóttir (formaður), Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Kristrún Ingunn S. Sveinsdóttir, Lúðvík Már Matthíasson, Sara Rós Jakobsdóttir og Sif Atladóttir.
Sjá frétt: Sigrún Agatha nýr formaður Íþróttamannanefndar ÍSÍ