Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
5

Fánaberar Íslands á setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Milano Cortina 2026

05.02.2026

 

Fánaberar Íslands á setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Milano Cortina 2026 verða Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Jón Erik Sigurðsson. Þau eru bæði keppendur í alpagreinum og taka þátt í svigi og stórsvigi. Elín mun bera fána Íslands í Cortina en Jón Erik í Bormio.

„Það er ótrúlegur heiður að fá að bera íslenska fánann inn á setningarhátíð Ólympíuleikanna. Þetta er stærsta stund ferilsins hingað til og ég er gríðarlega stolt af því að standa hér fyrir hönd Íslands,“ segir Elín Elmarsdóttir Van Pelt.

Jón Erik segir að draumur sem hann hefur átt frá barnsaldri sé að rætast. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að halda á fánanum. Ég hef dreymt um að keppa á Vetrarólympíuleikunum síðan ég var sex ára og að fá líka tækifæri til að bera íslenska fánann er alveg ótrúlegt.“

Setningarathöfnin fer fram á morgun, föstudag, á San Siro Ólympíuleikvanginum í Mílanó. Samhliða verður dagskrá tengd setningunni í Predazzo, Livigno og Cortína þar sem innganga íþróttafólksins verður skipulögð eftir stöðum. Á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru Mariah Carey, Lang Lang, Cecilia Bartoli, Andrea Bocelli, Laura Pausini, Pierfrancesco Favino, Sabrina Impacciatore og Matilda De Angelis.

Þema setningarinnar er Armonia, samhljómur, sem dregur fram ítölsk menningarverðmæti og tengir þau við anda Ólympíuleikanna. Í fyrsta sinn í sögu Ólympíuleikanna verða kveiktir tveir Ólympíueldar samtímis. Annar verður í Mílanó við Arco della Pace og hinn í Cortína d’Ampezzo á Piazza Dibona.

Fyrsti keppnisdagur íslenska hópsins verður á sunnudaginn en undirbúningur hópsins hefur gengið vel og tilhlökkunin er mikil fyrir því sem fram undan er. 

ÍSÍ óskar öllum Ólympíuförunum góðs gengis á leikunum.