Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
28.02.2026 - 28.02.2026

Ársþing KSÍ 2026

Ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf...
16

Reinharð sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ

16.02.2026



Ársþing Karatesambands Íslands fór fram sunnudaginn 15. apríl í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardag. Um 40 þingfulltrúar sóttu þingið fra 10 karatefélögum og -deildum.
Reinharð Reinharðsson lét af störfum sem formaður sambandsins eftir 20 ár við stjórnvölinn. Ronja Halldórsdóttir var kjörin nýr formaður og er hún fyrst kvenna til að gegna því hlutverki hjá Karatesambandinu.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var gestur á þinginu. Hann ávarpaði þingið og sæmdi, fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ, Reinharð Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir langt og farsælt starf fyrir karateíþróttina.

Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og var þeim vísað til nýrrar stjórnar til efnislegrar meðferðar eftir umræður í þingnefndum. Fjárhagsáætlun 2026 og Afreksstefna KAÍ 2026-2029 var samþykkt á þinginu með lítilsháttar breytingum.
Einn nýr aðalmaður var kosinn í stjórn sambandsins, Þorsteinn Yngvi Guðmundsson. Þrír nýir varamenn voru einnig kosnir á þinginu, þau Þórður Jökull Henrysson, Ísold Klara Klörudóttir og Willem Verheul.
Þingforseti var Valdimar Leó Friðriksson og þingritari Anna María Þórðardóttir.

ÍSÍ óskar nýjum formanni KAÍ innilega til hamingju með kjörið og þakkar fráfarandi formanni kærlega fyrir langt og farsælt samstarf. 

Myndir með frétt