Arna Sigríður Albertsdóttir á leið á Vetrar Paralympics
17.02.2026
Arna Sigríður Albertsdóttir hefur tryggt sér þátttökurétt á Vetrar Paralympics í skíðagöngu, sem fram fara í Milano Cortina dagana 6.–15. mars, á sama stað og Vetrarólympíuleikarnir. Með þátttökunni verður Arna fyrsta íslenska konan til að keppa í skíðagöngu á Vetrar Paralympics og jafnframt fyrsta íslenska konan til að taka þátt bæði á Sumar Paralympics og Vetrar Paralympics.
Arna keppti áður í handahjólreiðum á Sumar Paralympics í Tókýó 2020 (2021).
Á leikunum mun Arna keppa í sprettgöngu þann 10. mars og í 10 km skíðagöngu þann 11. mars.
Íþrótta‑ og Ólympíusamband Íslands óskar Örnu Sigríði Albertsdóttur innilega til hamingju með þátttökuréttinn og við hlökkum til að fylgjast með henni á Vetrar Paralympics.