Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28.02.2026 - 28.02.2026

Ársþing KSÍ 2026

Ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf...
26

Staðan og næstu skref í stefnumótun hreyfingarinnar

25.02.2026

 

Áfram heldur vinna við stefnumótun hreyfingarinnar.  Á síðustu vikum hefur verið unnið úr því efni sem þegar liggur fyrir. Á litlum vinnustofum höfum við hitt fulltrúa hreyfingarinnar og fjölmargra hagaðila þar sem unnið hefur verið að gagnaöflun og hugmyndir af ýmsu tagi. Óhætt er að segja að þessar vinnustofur hafi verið afar gagnlegar. Nú verður unnið úr því efni sem þegar liggur fyrir til að undirbúa frekari rýni, umræður og þróun hvað varðar markmiðasetningu undir ólíkar stoðir starfseminnar.   

Þegar talað er um ólíkar stoðir í starfi hreyfingarinnar er vísað í þá þrískiptingu sem byggir á grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum. Vissulega er mikil  skörun í þessum stoðum og margt sem tengist. Niðurstaða okkar var að gagnlegt væri að nálgast málið með þessum hætti í ferlinu.

Nú er komið að því að taka næsta skref í vinnunni og fá stærri hópa til að koma að þessum fyrsta hluta í vinnunni, taka þátt í að skilgreina hlutverkið og ákveða markmiðin.  Til að tryggja aðkomu sem flestra að ferlinu höfum við stillt upp fundum um allt land. Jafnframt verður boðið uppá fundi á Teams fyrir þau sem ekki geta tekið þátt í staðfundum.

Yfirlit yfir fundarstaði og tímasetningar má sjá hér fyrir neðan.  Þar má líka finna hlekk á skráningarform fyrir fundina. Við biðja alla sem sjá sér fært að taka þátt í fundunum að skrá sig á viðeigandi fund með nafni og netfangi. Athugið að hver fundur gæti staðið yfir í eina og hálfa klukkustund. Það er reyndar vel í lagt og ekki víst að fundirnir verði svo langir.

Fyrir þau sem vilja undirbúa sig fyrir fundina bendum við á að umræðan mun fyrst og fremst snúa að hlutverki hreyfingarinnar og markmiðum sem því tengjast.  Við höfum lýst því þannig að við erum að spyrja: „hvað” en ekki „hvernig”, og veltum því upp hver stóru markmiðin eru sem við ætlum að ná.  Síðar ræðum við og rýnum um það hvernig við getum sem best náð þessum markmiðum. Þá ræðum við aðstöðu,  skiptingu fjármagns o.s.frv.  Hver ættu lykilmarkmið hreyfingarinnar að vera þegar kemur að grasrótarstarfi, afrek og samfélagsmálum (lýðheilsu, forvarnir o.s.frv)? 

Við vonumst til að sjá sem allra flest á fundunum allt land.  Það er mikils virði og gerir alla vinnuna skilvirkari þegar raddir flestra heyrist  og ólík sjónarmið eru lögð á borðið.

Tökum öll þátt í vinnunni!

 

Skráning hér:

Skráning á fundi

 

 

FUNDARSTAÐIR OG FUNDARTÍMAR:

 

Landshluti:

 

Dagsetning:

Tími:

Staður:

 

Fjarfundur á Teams

Mán. 2. mars

17:00-18:30

Teams

 

Fjarfundur á Teams

Mið. 4. mars

18:00-19:30

Teams

 

Austurland

Fim. 5. mars

19:00-21:00

Sláturhúsið Egilsstöðum

 

Höfuðborgarsvæðið

Mán. 9. mars

15:00-17:00

Íþróttamiðstöðin Laugardal

 

Höfuðborgarsvæðið

Mið. 11. mars

17:00-19:00

Íþróttamiðstöðin Laugardal

 

Suðurnes

Mán. 16.mars

17:00-19:00

Íþróttahúsinu Sunnubraut í Reykjanesbæ

Suðurland

Þri. 17. mars

17:00-19:00

Stracta Hótel á Hellu

 

Norðurland vestra

Mán.23. mars

17:00-19:00

Fjölbrautarskóli NV Sauðárkróki

 

Norðurland eystra

Þri. 24. mars

16:30-18:30

Íþróttahöllin Akureyri

 

Vesturland

Fim. 9. apríl

18:00-20:00

Hótel Vesturland Borgarnesi

 

Vestfirðir

Lau. 11. apríl

14:00-16:00

Menntaskólinn á Ísafirði