Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
9

Konur í íþróttum! Nýtt og metnaðarfull fræðsluefni frumsýnt.

06.03.2026

 

Frumsýningarhóf var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag þar sem frumsýnt var nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum. Fjölmargir mættu til leiks til að kynna sér efnið sem endurspeglar bæði mikinn áhuga og brýna þörf fyrir fræðslu á þessu sviði.

Dagskráin hófst á frumsýningu fræðslumyndbanda og stuttri kynningu á verkefninu Konur í íþróttum. Að því loknu var boðið upp á léttar veitingar og gafst gestum gott tækifæri til samtals og tengslamyndunar í afslöppuðu og jákvæðu andrúmslofti.

Um verkefnið

Konur í íþróttum er metnaðarfullt fræðsluverkefni sem unnið er í samstarfi Háskólans í Reykjavík (HR), Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).

Að gerð fræðsluþáttaraðanna standa meðal annarra Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti íþróttafræðideildar HR, og Lára Hafliðadóttir, starfsmaður KSÍ á Vísindasviði og doktorsnemi í íþróttavísindum við HR. Þær hafa leitt verkefnið og gegnt lykilhlutverki í þróun, innihaldi og heildarhugsun efnisins.

Fræðsluefnið samanstendur af 44 myndböndum, þar sem fjölbreyttur hópur sérfræðinga fjallar um lykilþætti tengda líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð íþróttakvenna. Myndböndin eru skipt upp eftir efni fyrir yngri íþróttakonur og fyrir eldri iðkendur, þjálfara, foreldra og aðra sem koma að íþróttastarfi.

Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og fræðslu, styrkja heilsu og vellíðan íþróttakvenna, hámarka frammistöðu þeirra og draga úr líkum á meiðslum.

👉 Hér má sjá allt fræðsluefnið og nánari kynningu á verkefninu:
https://www.ru.is/konur

 

Myndir með frétt