Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

7

Vetrar Paralympics í Milano Cortina 2026 hefjast formlega í dag.

06.03.2026

 

Vetrar Paralympics í Milano Cortina 2026 hefjast formlega í dag, 6. mars, og mun Arna Sigríður Albertsdóttir keppa fyrir Íslands hönd í skíðagöngu. Hún verður fyrsta íslenska konan til að keppa í greininni á leikunum en hún tók einnig þátt á Sumar Paralympics í handahjólreiðum í Tókýó 2020 (2021). 

Arna keppir í tveimur greinum og verða þær báðar sýndar í beinni útsendingu á RÚV:

  • 10. mars – Sprettur kl. 10:25 (09:25 að íslenskum tíma)
  • 11. mars – 10 km ganga kl. 09:45 (08:45 að íslenskum tíma)

 

Keppnisstaðurinn er Tesero CrossCountry Skiing Stadium en íslenski hópurinn hefur komið sér vel fyrir í Paralympicþorpinu í Predazzo þar sem undirbúningur gengur vel og stemningin er góð.

Fylgjast má með undirbúningi og lífinu í þorpinu á Instagramsíðu Íþróttasambands fatlaðra: https://www.instagram.com/npciceland/

 

Saga íslenskra þátttakenda

Saga Íslands á VetrarParalympics nær aftur til ársins 1994, þegar Svanur Ingvarsson keppti fyrstur Íslendinga í Lillehammer. Á eftir honum fylgdu Erna Friðriksdóttir og Jóhann Þór Hólmgrímsson á leikunum 2010 og 2014 og Hilmar Snær Örvarsson keppti bæði 2018 og 2022. Nú verður Arna fimmti Íslendingurinn til að taka þátt á leikunum. Lesa má nánar um söguna hér:  https://hvatisport.is/arna-fimmti-islendingurinn-a-vetrar-paralympics/

 

Við óskum Örnu góðs gengis á leikunum og hlökkum til að fylgjast með henni á brautinni.