Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
13

Fræðslufyrirlestur: Íþróttaferillinn – hvernig nýtir þú tækifærin? verður haldinn á mánudaginn 16. mars kl. 17:00

13.03.2026

 

Íþróttamannanefnd ÍSÍ stendur fyrir fræðslufyrirlestri fyrir íþróttafólk þar sem farið verður yfir mikilvæga þætti sem tengjast lífi og starfsferli atvinnuíþróttamanna – bæði á meðan ferlinum stendur og eftir að honum lýkur.

Viðburðurinn fer fram mánudaginn 16. mars kl. 17:00 í fundarsal á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ.
Boðið verður upp á léttar veitingar og eru öll áhugasöm velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Markmið viðburðarins er að veita íþróttafólki hagnýta fræðslu og innsýn í mikilvæga þætti sem geta haft áhrif á fjárhag, samninga og líf eftir atvinnumennsku í íþróttum.

Fyrirlesarar kvöldsins verða:

Kristinn Jónasson – Samningagerð og verktakagreiðslur
Kristinn fjallar um helstu atriði sem íþróttafólk þarf að hafa í huga við samningagerð, réttindi og skyldur í samningum og hvernig verktakagreiðslur og skattamál geta haft áhrif á atvinnuíþróttafólk.

Björn Berg – Reglubundinn sparnaður
Björn fer yfir mikilvægi þess að byggja upp fjárhagslegt öryggi á meðan atvinnuferill stendur yfir. Hann fjallar meðal annars um sparnað, fjárhagslega framtíðarsýn og hvernig hægt er að nýta tekjur á skynsamlegan hátt til lengri tíma.

Silja Úlfarsdóttir – Lífið sem atvinnuíþróttamaður
Silja deilir reynslu sinni af lífinu sem atvinnuíþróttamaður, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja atvinnumennsku og mikilvægi þess að undirbúa lífið bæði innan og utan íþróttanna.

Viðburðurinn er hluti af fræðsluverkefni Íþróttamannanefndar ÍSÍ sem miðar að því að styðja við íþróttafólk á öllum stigum ferilsins með aukinni þekkingu og umræðu um málefni sem skipta máli fyrir framtíð þeirra.

Allir sem hafa áhuga á málefninu eru hvattir til að mæta.

Skráning hér.