Frestur rennur út 18. mars í fyrsta útdrátt úr miðapotti aðgöngumiða á Ólympíuleikana í LA 2028
16.03.2026
Undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028 er kominn á fullt og miðasöluferlið hafið.
Leikarnir verða haldnir dagana 14.–30. júlí 2028 og það má búast við stórkostlegri íþróttahátíð með ógleymanlegum viðburðum. Fyrsta skrefið fyrir alla sem vilja tryggja sér möguleika á miðum er að skrá sig í miðapottinn, sem er nú opinn til 18. mars 2026.
⭐ Hvernig er miðaferlið?
Miðaferlið byggir á útdráttarkerfi, sem auðveldar dreifingu miða og tryggir sanngjarnt aðgengi:
- Þú skráir þig í miðapott.
- Útdráttur velur handahófskennt hverjir fá að kaupa fyrst.
- Þeir sem eru dregnir fá 48 klst. bókunarglugga (time slot).
- Þú kaupir miða á meðan sá gluggi er opinn.
- Ef þú færð útdeildan ekki bókunarglugga núna helst skráningin þín áfram í næstu útdrætti.
Hérna getur þú lesið nánar um miðasölu leikanna: Miðasala leikanna
⭐ Leiðbeiningar skref fyrir skref
1. Skráning í miðapott
- Stofnaðu aðgang á LA28 vefsíðunni: Stofna aðgang
- Skráðu þig í miðapottinn: Skráning í miðapott LA 2028
- Skráning er ókeypis, óbindandi og fyrsta skrefið til að fá sölutíma í apríl 2026.
2. Undirbúningur áður en bókunargluggi opnar – mikilvæg atriði
Þegar þú ert dregin/dreginn út færðu aðeins 48 klukkustundir til að ganga frá miðakaupum.
Góður undirbúningur tryggir að þú nýttir tímann sem best þegar bókunarglugginn opnast.
🔹 Kynntu þér dagskrá leikanna
– Veldu hvaða íþróttir og viðburði þú vilt helst sjá.
– Skoðaðu hvaða dagar henta þér og hafðu varaáætlun ef uppáhaldsviðburðirnir seljast hratt.
🔹 Skoðaðu staðsetningar og ferðatíma milli keppnisstaða
– Los Angeles er stór og dreifð borg.
– Athugaðu hvort tíminn nægi til að fara á fleiri en einn viðburð sama dag.
– Skipuleggðu hvaða svæði borgarinnar henta miðað við ferðadaga.
🔹 Athugaðu miðaverð
– Vinsælustu greinar eru oft dýrastar.
🔹 Hafðu greiðsluupplýsingar tilbúnar
– VISA er eini samþykkti greiðslumátinn.
– Athugaðu gildistíma, heimildir og að kortið sé virkt fyrir alþjóðleg kaup.
🔹 Búðu til einfaldan “miðalista”
– 1. forgangur (draumaviðburðir)
– 2. forgangur (góðir valkostir)
– 3. forgangur (ef annað selst upp)
⭐ Af hverju skiptir undirbúningur svona miklu máli?
Þegar bókunarglugginn opnast getur sumt selst upp á mínútum.
Ef þú ert búin/n að ákveða hvað þú vilt og hvað hentar þér, minnkar stress og eykst líkur á að þú fáir það sem þú sækist eftir.
3. Fylgstu með tölvupóstinum þínum
- Tölvupóstar um útdrátt berast 31. mars – 7. apríl 2026.
- Athugaðu ruslpóst – svona póstur lendir oft þar.
- Í póstinum færðu 48 klst. sölugluggann þinn.
4. Kaup á miðum
- Veldu þá viðburði sem þú vilt fara á.
- Hámarkskaup eru um 12 miðar á mann.
- Greiðslur fara fram með VISA.
- Ljúktu kaupunum innan 48 klst.
🔄 Ef þú færð ekki sölutíma í fyrsta útdrætti
- Skráningin þín heldur áfram í næstu útdrætti — engin þörf er á að skrá sig aftur.
- Nokkrir miðasölufasar verða í boði fram að leikunum.
⭐ VIP pakkar
- On Location býður upp á ferðapakka og VIP-þjónustu fyrir þá sem vilja sérsniðna upplifun.
Paralympics 2028
- Miðasalan opnar árið 2027.