Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Jens Kristmannsson - Minning

27.03.2026

 

Jens Kristmannsson, Heiðursfélagi ÍSÍ, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 7. mars síðastliðinn, 85 ára að aldri.

Jens var mikils metinn íþróttaleiðtogi á Ísafirði og starfaði meðal annars á vettvangi Knattspyrnufélagsins Harðar, þar sem hann var formaður í yfir 20 ár og Íþróttabandalags Ísafjarðar þar sem hann gegndi einnig formannsembætti. Hann var knattspyrnuiðkandi á sínum yngri árum og einnig landsdómari í knattspyrnu, svo eitthvað sé nefnt. Jens gekk í flest hlutverk innan íþróttahreyfingarinnar, allt frá fararstjórahlutverki til formanns, og var oft leitað í hans reynslubanka þegar stórar spurningar og áskoranir lágu fyrir. Jens var annt um varðveislu sögulegra heimilda um íþróttastarfsemi og lagði hann sitt af mörkum til þeirra mála.

Jens vann ötullega að sameiningu Héraðssambands Vestur-Ísfirðinga og Íþróttabandalags Ísafjarðar í Héraðssamband Vestfirðinga,  í kjölfar sameiningu sveitarfélaga á svæðinu. Hann var einnig virkur þátttakandi í samfélaginu fyrir vestan, var bæjarfulltrúi og tók þátt í pólitísku starfi. Hann tók að sér fjölmörg trúnaðarstörf fyrir samfélagið á Ísafirði og var á hann treyst í mörgum úrlausnarmálum og framfaraskrefum.

Jens átti sæti í framkvæmdastjórn ÍSÍ um árabil á tímum mikilla breytinga og lagði til mikilvæga rödd og innsýn landsbyggðarinnar til ýmissa hagsmunamála í íþróttahreyfingunni á þeim tíma. Eftirminnilegur er framkvæmdastjórnarfundur ÍSÍ sem haldinn var á Ísafirði á meðan Jens átti sæti í stjórninni. Þar var hann í essinu sínu og naut þess að sýna stoltur félögum sínum í stjórninni íþróttamannvirki og blómlega íþróttastarfsemi á Ísafirði.  Hann og Sigríður kona hans sýndu hópnum mikla gestrisni í þessari ferð og voru móttökurnar ekki af verri endanum. Rúsínan í pylsuendanum var svo körfuknattleikur karlaliðs Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar í troðfullu íþróttahúsinu.

Jens var sæmdur Gullmerki ÍSÍ árið 1992 og Heiðurskrossi ÍSÍ, æðsta heiðursmerki ÍSÍ, árið 2011, fyrir framúrskarandi störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Hann var svo kjörinn Heiðursfélagi ÍSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2015.

Stjórn og starfsfólk ÍSÍ kveður góðan félaga og vin með þakklæti fyrir samfylgdina og öll hans góðu störf í þágu íþrótta. Eiginkonu hans og fjölskyldu sendum við dýpstu samúðarkveðjur.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ