Myndbönd frá fræðslukvöldi Íþróttamannanefndar ÍSÍ eru nú aðgengileg
Mánudaginn 16. mars hélt Íþróttamannanefnd ÍSÍ fræðslufyrirlesturinn „Veistu hvað þarf til að byggja upp sterkan íþróttaferil?“, þar sem rætt var um lífið í og í kringum atvinnuíþróttir.
Nú eru erindin aðgengileg á myndböndum í heild sinni.
Fyrirlesarar:
- Kristinn Jónasson - Samningagerð og verktakagreiðslur
- Björn Berg - Reglubundinn sparnaður
- Silja Úlfarsdóttir - Lífið sem atvinnuíþróttamaður
Fræðsluerindin fjölluðu meðal annars um:
- Hver er munurinn á að vera verktaki eða launamaður?
- Af hverju skiptir máli að byrja snemma að spara?
- Hvernig er lífið sem atvinnuíþróttamaður?
Hér má horfa á erindin:
Kristinn Jónasson: Samningagerð og vertakagreiðslur
Björn Berg: Reglubundinn sparnaður
Silja Úlfarsdóttir: Lífið sem atvinnuíþróttamaður