Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
10.04.2026 - 10.04.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
8

Þrír leiðtogar úr þríþraut sæmdir Gullmerki ÍSÍ

08.04.2026

 

Tíunda ársþing Þríþrautarsambands Íslands (ÞRÍ) fór fram um helgina í húsakynnum ÍSÍ. Var því hátíðarbragur á þinginu.

Valdimar Leó Friðriksson var forseti þingsins og stýrði því.  Þingstörfin voru hefðbundin og samkvæmt lögbundinni dagskrá.  Endurskoðuð afreksstefna ÞRÍ var samþykkt á þinginu en engar lagabreytingar lágu fyrir að þessu sinni.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarpaði þingið og flutti hvetjandi ræðu þar sem hann þakkaði fyrir gott samstarf á liðnu ári og mikilvægt framlag þríþrautarhreyfingarinnar til íþrótta og lýðheilsu í landinu. Hann lagði jafnframt áherslu á gildi sjálfboðastarfs og mikilvægi þess að meta og þakka þeim fjölmörgu sem leggja íþróttum lið.

Að ávarpi loknu sæmdi hann þrjá einstaklinga Gullmerki ÍSÍ, samkvæmt samþykkt framkvæmdastjórnar ÍSÍ.

 

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé, fyrsti formaður ÞRÍ. Var formaður frá stofnun sambandsins árið 2016 til ársins 2020. Hún hefur sinnt fjölmörgum og fjölbreyttum hlutverkum innan þríþrautarhreyfingarinnar og fyrir félag sitt, Umf. Breiðablik um langt árabil.

 

Gísli Ásgeirsson, fyrrverandi formaður Þríþrautarnefndar ÍSÍ, sem var undanfari sérsambands um þríþraut. Hann gegndi lykilhlutverki í endurvakningu og uppbyggingu þríþrautar á Íslandi. Þá hefur hann sinnt fjölmörgum sjálfboðaliðastörfum fyrir sitt félag SH og nefndarsetu fyrir ÍSÍ.

 

Valerie Maier, núverandi formaður ÞRÍ. Hún hefur verið forseti ÞRÍ frá árinu 2020 og gegnt því embætti í sex ár og var endurkjörin til næstu tveggja ára á þinginu. Valerie hefur einnig verið mjög virk í sjálfboðastarfi fyrir félag sitt, SH, auk þess að taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi. Hún var nýverið kjörin ritari þróunarnefndar Evrópska þríþrautarsambandsins.

 

Valerie Maier var endurkjörin sem forseti og Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir og Jón Axelsson voru endurkjörin í stjórn. Fyrir í stjórn eru Elísabet Einarsdóttir og Hörður Sigurðarson, sem voru kjörin á þinginu 2025.

 

Myndir með frétt