Tveir stefnumótunarfundir á Vestfjörðum á laugardaginn
09.04.2026Áfram heldur vinna við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar. Nú á laugardag verður fundað á Ísafirði með fulltrúum íþróttahéraða og öllum sem áhuga hafa á málinu á Vestfjörðum.
Athygli er vakin á því að bikarleikur Vestra og Leiknis í knattspyrnu, sem áður hafði verið frestað, verður haldinn sama dag klukkan 16:00. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að halda tvo fundi um stefnumótunina á Ísafirði.
Fyrri fundurinn hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 15:00.
Seinni fundurinn verður frá klukkan 16:30 til 18:30.
Allt áhugasamt fólk um íþróttamál ætti að geta mætt á fundinn og tekið þátt í honum.
Nú er komið að því að taka næsta skref í vinnunni og fá stærri hópa til að koma að þessum fyrsta hluta í vinnunni, taka þátt í að skilgreina hlutverkið og ákveða markmiðin. Til að tryggja aðkomu sem flestra að ferlinu höfum við stillt upp fundum um allt land.
Við biðjum alla sem sjá sér fært að taka þátt í fundunum að skrá sig á viðeigandi fund með nafni og netfangi. Athugið að hver fundur gæti staðið yfir í eina og hálfa klukkustund. Það er reyndar vel í lagt og ekki víst að fundirnir verði svo langir.
Það er mikils virði og gerir alla vinnuna skilvirkari þegar raddir flestra heyrast og ólík sjónarmið eru lögð á borðið.
Við vonumst til að sjá sem allra flest á fundinum í Menntaskólanum á Ísafirði.
Skráning á fundina er hér