Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
11

Ferðakostnaður barna og ungmenna í íþróttastarfi

11.04.2026
Í Kastljósi á RÚV á fimmtudagskvöldið, 9. apríl, var fjallað um ferðakostnað barna og ungmenna í íþróttastarfi, sér í lagi á landsbyggðinni, og rætt var við Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ, um málið. Þar kom fram að hann teldi þetta mikið áhyggjuefni og nefndi að hár ferðakostnaður væri einmitt eitt þeirra mála sem hvað oftast hafa komið upp á stefnumótunarfundum ÍSÍ og UMFÍ sem haldnir hafa verið um allt land með fulltrúum aðildafélaga, sérsambanda og íþróttahéraða í heimabyggðum þeirra.

Í þættinum kom fram að til úthlutunar úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir árið 2025 voru 123,9 milljónir króna en styrkhæfar umsóknir námu 694,6 milljónum króna sem er rúmlega fimmföld upphæð miðað við það sem var til skiptanna. Sótt var um styrki vegna 2.953 ferða frá 116 félögum um land allt sem undirstrikar hve umfangsmikil þörfin er. Tekið skal fram að ekki eru öll mót styrkhæf og gistikostnaður er t.d. ekki styrkhæfur, þannig að raunverulegur ferðakostnaður vegna þátttöku í íþróttalífinu er mun hærri en endurspeglast í umsóknum til sjóðsins.

Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga hækkar í 226,9 milljónir króna fyrir árið 2026 þar sem veitt var viðbótarframlag upp á 100 milljónir króna. Willum benti hins vegar á að þrátt fyrir þessa viðbót þá er heildarupphæðin langt frá því að mæta raunverulegri þörf og einnig að viðbótarfjármagnið er aðeins til eins árs, sem gerir íþróttafélögum erfitt að skipuleggja starf og fjármögnun til lengri tíma.

 

Willum lagði áherslu á að málið tengist stærra samhengi: byggðafestu, aðgengi barna að tómstundum og mikilvægi íþrótta í forvörnum og lýðheilsu. Jafnt aðgengi barna að íþróttum, óháð búsetu, er grundvallaratriði fyrir fjölskyldur um allt land.

Kastljósþáttinn er hægt að sjá hér

Um úthlutunina úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir árið 2025 er hægt að lesa hér