Málþing um forvarnir í lyfjamálum
03.04.2018 08:54
Til baka 
                        
    			Þann 5. apríl nk. fer fram málþing um forvarnir í lyfjamálum. Fredrik Lauritzen, forstöðumaður forvarna- og lýðheilsumála hjá Anti-Doping Norway, mun m.a. fjalla um:
- Hverjir eru hvatarnir á bakvið lyfjamisnotkun í líkamsrækt og hver er áhættan sem fylgir því?
 - Mikilvægi þess að stuðla að lyfjalausu og heilbrigðu umhverfi í líkamsrækt.
 - Sýnd verða dæmi um forvarnaráætlanir frá Noregi.
 - Tengsl milli notkunar á fæðubótarefnum og lyfjamisnotkunar.
 
Málþingið fer fram í sal M101 í Háskólanum í Reykjavík kl. 17:00-18:30.
Málþingið er öllum opið en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hér á vefsíðu ÍSÍ til þess að hægt sé að gera ráðstafanir vegna fjölda.
