Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Tölvupóstssvindl og íþróttafélög

09.10.2020

 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst ÍSÍ um að tölvupóstssvindl hafi aukist umtalsvert og beinist nú í auknum mæli að íþróttahreyfingunni. Nú þegar hafa nokkur íþróttafélög orðið fyrir barðinu á svindli sem þessu og tapað talsverðu fé.
Embættið sendi ÍSÍ leiðbeinandi upplýsingar vegna málsins sem finna má hér:

Upplýsingar og góð ráð gegn tölvupóstssvindli.

Íþróttahreyfingin er hvött til að kynna sér málefnið vandlega og gæta fyllstu varkárni í millifærslum á fé inn á ókunna bankareikninga. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að öll svik eða tilraunir til svika séu tilkynnt til lögreglunnar og má finna nánari upplýsingar varðandi slíkar tilkynningar í ofangreindu upplýsingaskjali.

Þess má geta að heildartjón vegna netglæpa sem bitnað hafa á Íslendingum síðustu þrjú árin, nemur um 1,3 milljarði króna.