ÍSÍ hefur úthlutað styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna ferðakostnaðar íþrótta- og ungmennafélaga vegna þátttöku í fyrirfram skilgreindum styrkhæfum mótum ársins 2025.
Í dag birtist grein á visir.is eftir forseta ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, þar sem hann fjallar um mikilvægi reglulegrar hreyfingar og það hlutverk sem íþróttahreyfingin gegnir í lýðheilsu þjóðarinnar.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið tvo styrki úr Lýðheilsusjóði sem Embætti landlæknis fer með. Styrkirnir verða nýttir til að þróa áfram þau lýðheilsuverkefni sem ÍSÍ stendur fyrir, þar á meðal heilsu- og hvatningarverkefnið Lífshlaupið.
Fræðsluerindi ÍSÍ og UMFÍ fyrir sambandsaðila og aðildarfélög um grunnatriði í bókhaldi og uppbyggingu ársreikninga verður endurtekið fimmtudaginn 26. mars. Fræðslan fer fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Íþróttamannanefnd ÍSÍ stóð fyrir fræðslukvöldi í höfuðstöðvum KSÍ mánudaginn 16. mars þar sem fjallað var um mikilvæga þætti sem tengjast því að byggja upp og viðhalda farsælum íþróttaferli.
Frestur til að skrá sig í fyrsta útdrátt úr miðapotti aðgöngumiða á Ólympíuleikana í LA 2028 rennur út 18. mars! Leikarnir verða haldnir dagana 14.–30. júlí 2028 og það má búast við stórkostlegri íþróttahátíð með ógleymanlegum viðburðum. Fyrsta skrefið fyrir alla sem vilja tryggja sér möguleika á miðum er að skrá sig í miðapottinn, sem er nú opinn til 18. mars 2026.
Vetrarólympíuleikarnir eru stærsta íþróttahátíð vetraríþrótta og sameina fremsta íþróttafólk víðs vegar að úr heiminum. Einkunnarorð Ólympíuhreyfingarinnar, hraðar, hærra, sterkari – saman, hvetja íþróttafólk til að leggja sig fram af bestu getu, sækjast eftir stöðugum framförum og styrk og minna jafnframt á mikilvægi samstöðu í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.