Ólympíustöðin sýnir frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar
Í dag kl.14:00 (kl.13:00 ísl.) mun Ólympíustöðin sýna frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) í Lausanne í Sviss í beinni útsendingu.Thomas Bach, forseti IOC mun tilkynna á fundinum hvaða borg það er sem verður gestgjafi Vetrarólympíuleikanna 2026, en sú athöfn fer fram kl.18:00. Borgirnar tvær sem keppast um að verða valdar sem gestgjafi leikanna eru Stokkhólmur-Åre í Svíþjóð og Mílanó-Cortina á Ítalíu. Á fundinum munu fulltrúar frá báðum borgum vera með erindi, en Ólympíustöðin mun einnig sýna myndefni sem unnið hefur verið um undirbúning borganna í tengslum við Vetrarólympíuleikana 2026 ásamt viðtölum við skipuleggjendur og fleiri sem koma að slíku verkefni.
500 dagar til Ólympíuleika í Tókýó
Ólympíulið flóttafólks
Næstu Ólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Á leikunum munu 11.000 íþróttamenn keppa í 33 íþróttagreinum. Fimm íþróttagreinum hefur verið bætt við keppnisdagskrána frá síðustu leikum sem fóru fram í Ríó í Brasilíu 2016, en það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun. Sjá má íþróttagreinarnar sem keppt verður í hér og dagskrá leikanna má sjá hér.
Tokyo 2020 - sjálfboðaliðar óskast!
Ólympíuleikarnir 2020 verða haldnir í Tókýó í Japan. Nú eru mótshaldarar að óska eftir umsækjendum til að taka að sér sjálfboðaliðastörf í tengslum við leikana.2 ár í Ólympíuleikana í Tókýó
Ólympíuleikarnir fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Í dag eru tvör ár þar til setningarhátíð leikanna fer fram.
Hlaupið með Ólympíueldinn mun hefjast í Fukushima
Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Tókýó hafa tilkynnt að hlaupið með Ólympíueldinn (The Olympic Torch Relay) um Japan muni hefjast í Fukushima en hlaupið verður með Ólympíueldinn um 47 héruð í Japan. Afhending á viðurkenningum til Ólympíufara
ÍSÍ bauð í gær, fimmtudaginn 5. júlí, til móttöku í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Lukkudýr Ólympíuleikanna í Tókýó 2020
Næstu Sumarólympíuleikar fara fram í Tókýó í Japan 24. júlí til 9. ágúst 2020. Þar munu um 11.000 íþróttamenn etja kappi í 28 íþróttagreinum, þar af eru 5 nýjar íþróttagreinar á dagskrá. Nýlega voru lukkudýr Ólympíuleikanna 2020 kynnt til leiks, en það var teiknarinn Ryo Taniguchi, sem hannaði þau. Nöfn sín fá lukkudýrin þann 22. júlí nk. þegar að tveir dagar eru í að einungis 2 ár séu þangað til setningarathöfnin fer fram á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Fagna afrekum sínum eftir á
Þær aðstæður koma nú reglulega upp þar sem íþróttafólk sem unnið hefur til verðlauna á Ólympíuleikum gerist sekt um lyfjamisferli og missir því verðlaun sín. Það íþróttafólk, sem næst er í röðinni missti því af sínu tækifæri til þess að fagna afrekum sínum á verðlaunapalli á Ólympíuleikum. Íþróttamannanefnd innan IOC hefur unnið að því síðustu mánuði að setja saman ákveðin viðmið fyrir þetta íþróttafólk, um hvernig það geti fengið sín verðlaun afhent og þar með fagnað sínum árangri. Nýlega samþykkti framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) þessi meginviðmið sem íþróttamannanefndin setti saman.
Japanskur blaðamaður í heimsókn
PyeongChang 2018 - Góðir gestir í Ólympíuþorpinu
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- menningar- og íþróttamálaráðherra, var viðstödd setningu Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang sem fram fór í gær og í dag skoðaði hún aðstæður á leikunum, hitti keppendur og heimsótti Ólympíuþorpið.PyeongChang 2018 - Allir keppendur mættir
Allir fimm íslensku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru komnir í Ólympíuþorpið eftir langt ferðalag frá Íslandi, Noregi og Bandaríkjunum. Hluti farangurs skilaði sér ekki með hópnum en barst síðdegis í gær og því allt til reiðu fyrir dagskrá næstu daga.