Styrkir Ólympíusamhjálparinnar vegna PyeongChang 2018
Ólympíusamhjálpin hefur úthlutað undirbúningsstyrkjum vegna Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang 2018, en næstu Vetrarólympíuleikar fara fram í Kóreu í febrúar 2018. Skíðasamband Íslands hlaut styrki vegna sjö skíðamanna og er um að ræða styrki í allt að 16 mánuði, eða frá byrjun nóvember 2016 fram að lokum febrúar 2018. Styrkirnir nema rúmlega 1.000 bandaríkjadölum (USD) á mánuði vegna hvers þeirra auk þess sem að ferðastyrkur að upphæð 5.000 bandaríkjadölum (USD) stendur hverjum þeirra til boða á tímabilinu.
Móttaka til heiðurs Ólympíuförum
Ríó 2016 - Lokaathöfnin
Lokaathöfn Ólympíuleikanna 2016 fór fram í gærkvöldi og var glæsileg að vanda. Þátttakendur gengu inn á Maracana-leikvanginn með þjóðfána sína. Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona bar fána Íslands. Dans- og tónlistaratriðin voru stórskemmtileg og flott og mikil stemmning hjá þátttakendum.
Ríó 2016 - Þrír Íslendingar með verðlaun
Þrír Íslendingar unnu til verðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó sem þjálfarar í handbolta. Guðmundur Guðmundsson, Dagur Sigurðsson og Þórir Hergeirsson.Ríó 2016 - Komið að lokum leikanna
Ólympíuleikunum í Ríó 2016 verður slitið í kvöld. Hrafnhildur Lúthersdóttir verður fánaberi Íslands.Ríó - 2016 Samantekt
Íslenskir þátttakendur á Ólympíuleikunum í Ríó hafa nú allir lokið keppni. Hér má sjá samantekt um árangur þeirra á leikunum.
Ríó 2016 - Íslandsmet hjá Anítu
Aníta Hinriksdóttir keppti í dag í undanrásum 800 metra hlaups á Ólympíuleikunum í Ríó. Aníta setti Íslandsmet með því að hlaupa á 2:00,14 mínútum, en hún varð í sjötta sæti í sínum riðli. Íslandsmet Anítu frá árinu 2013 var 2:00,49 mínútur. Það skilaði Anítu í 46. sæti fyrir fram á keppendalistanum, af 65 keppendum.Ríó 2016 - Ásdís hefur lokið keppni
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir keppti í undankeppni spjótkast kvenna fyrr í kvöld í seinni kasthóp. Ásdís náði sér ekki á strik en lengsta kast hennar var 54,92.Ríó 2016 - Aníta í fjórða riðli
Aníta Hinriksdóttir keppir á morgun miðvikudag í undanriðlum 800 metra hlaups kvenna. Aníta hleypur á áttundu braut í fjórða riðli sem ræstur verðuru kl. 11.16 að brasilískum tíma (14.16 að íslenskum tíma). Ríó 2016 - Ásdís í seinni kasthóp
Ásdís Hjálmsdóttir verður í seinni kasthóp í undankeppni spjótkasts kvenna sem fram fer að kvöldi þriðjudagsins 16. ágúst. Ásdís er tólfta af fimmtán í kaströðinni.Ríó 2016 - Ólympíumerki
Eins og á öðrum Ólympíuleikum útbúa flestar þjóðir pinna til minja. Ísland er þar engin undantekning. Íslensku þátttakendurnir fengu með sér tvær gerðir af pinnum bæði merki Íþrótta- og Ólympíusambandsins sem og merki sérstaklega merkt Ríó 2016.Ríó 2016 - í tölum
Hér má sjá skemmtilega samantekt um Ríó 2016 í tölum. 11.551 íþróttamenn , 306 verðlaunaafhendingar, 60.000 máltíðir, 400 knattspyrnuboltar.