Laugardaginn 9. maí sl. fór fram 33. þing Keilusambands Íslands (KLÍ) og var það að þessu sinni haldið í boði Íþróttafélags Asparinnar í Sigtúni í Reykjavík.
Á aðalfundi Umf. Breiðabliks var Ásgeir Baldurs, fráfarandi formaður félagsins, sæmdur Gullmerki ÍSÍ. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson formaður Heiðursráðs ÍSÍ afhentu heiðursviðurkenninguna.
Í dag kl. 15:00 fer útför Valdimars Örnólfssonar, Heiðursfélaga ÍSÍ, fram frá Hallgrímskirkju. Valdimar var 94 ára gamall, fæddur 9. febrúar 1932. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ritaði minningarorð um Valdimar sem birtust í Morgunblaðinu í dag.
Ársþing HSÍ fór fram 8. maí síðastliðinn. Þar var Þorbjörg Gunnarsdóttir - Obba, sæmd Gullmerki Handknattleikssambands Íslands á ársþingi sambandsins 8. maí síðastliðinn.