Laugardaginn 7. nóvember munu Háskólinn í Reykjavík, Íþróttasamband fatlaðra og Allir með verkefnið standa saman að námskeiði og vinnustofuna: „Allir með: Hvað getum við hin gert?“
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við Sundsamband Íslands, stendur fyrir Syndum, árlegu landsátaki í sundi, dagana 1.–30. nóvember. Átakið er nú haldið í sjötta sinn. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna, enda er sund fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.
Ólympíuleikar ungmenna hefjast 31. október og fyrstu Íslendingarnir eru lagðir af stað. Sundfólkið Sólveig Freyja Hákonardóttir og Alexander Ari Andrason héldu í morgun til Dakar í Senegal ásamt fylgdarfólki sínu. Skylmingamaðurinn Ari Vilberg Jónasson bætist svo í hópinn 9. nóvember ásamt þjálfara sínum.
Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á viðburði héraðsins, Íþróttamaður ársins, sem haldinn var í Vallarhúsinu á Húsavík föstudaginn 23. október.
Árlegur formannafundur Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) fór fram í síðustu viku. Fundurinn var sérstakur að þessu sinni því nú eru 30 ár liðin frá stofnun ÍRB. Á fundinum voru tveir stjórnarmenn ÍRB sæmdir gull- og silfurmerki ÍSÍ fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf í þágu íþróttahreyfingarinnar.