Fara í efni

Viðburðir

14. okt. 2026

Skíðaþing haldið á 80 ára afmælisári SKÍ

Yfir 50 manns sóttu 77. Skíðaþing á Akureyri um liðna helgi þar sem stefnumótun skíðahreyfingarinnar var í brennidepli.
Viðburðir
12. okt. 2026

Vel sóttur sambandsráðsfundur UMFÍ á Ísafirði

Um 70 manns sóttu 46. sambandsráðsfund UMFÍ á Ísafirði á laugardag, þar á meðal formenn og framkvæmdastjórar allra íþróttahéraða landsins. Samstaða og sameiginleg stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ settu svip sinn á fundinn.
Viðburðir
11. okt. 2026

ÍSÍ á fundum og vinnustofum evrópskra Ólympíunefnda í Split

Undirbúningur fyrir stórmótin fram undan, EYOF og Evrópuleikana 2027 og Ólympíuleikana í Los Angeles 2028, var efst á baugi þegar evrópskar Ólympíunefndir komu saman í Split dagana 9. og 10. október.
Viðburðir
10. okt. 2026

Um 50.000 manns tóku þátt í Íþróttaviku Evrópu

Íþróttavika Evrópu #BeActive fór fram dagana 23. til 30. september. Um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir voru haldnir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt.
Viðburðir
9. okt. 2026

Gengið í skólann í tuttugu ár!

Göngum í skólann er lokið fyrir árið 2026 og tóku 55 grunnskólar þátt. Verkefnið hvetur börn og foreldra til að nota virkan og öruggan ferðamáta til og frá skóla með áherslu á hreyfingu, umhverfisvitund og lýðheilsu.
Viðburðir
8. okt. 2026

Kakadúar í aðalhlutverki í merkjum Brisbane 2032

Skipuleggjendur Ólympíuleikanna og Paralympics í Brisbane 2032 hafa afhjúpað merki leikanna. Í báðum merkjunum er kakadúinn í aðalhlutverki, fjörugur og forvitinn fugl sem á heima í Queensland og víðar í Ástralíu.
Almennar fréttir Viðburðir
7. okt. 2026

Undirbúningur fyrir EYOF 2027 í Brașov kominn á fullt

Fundur aðalfararstjóra vegna Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar (EYOF) sem fram fer í Brașov í Rúmeníu 14.–21. febrúar 2027, var haldinn í borginni nú í september.
Viðburðir
6. okt. 2026

Virk alla ævi: Þátttaka kvenna í íþróttum á öllum æviskeiðum

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytið stóðu fyrir málþinginu Virk alla ævi – þátttaka kvenna í íþróttum miðvikudaginn 30. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Málþingið var haldið í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (#BeActive). Þar var fjallað um stöðu og þátttöku kvenna í íþróttum á ólíkum æviskeiðum, allt frá unglingsárum til efri ára.
Fræðsla Viðburðir
2. okt. 2026

Samtal og samkennd í forgrunni á Forvarnardeginum

Forvarnardagurinn var haldinn í gær í 21. sinn undir yfirskriftinni Samtal og samkennd. Meðal þeirra sem fluttu ávörp á málþingi dagsins í Verzlunarskóla Íslands voru Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og María Heimisdóttir landlæknir. Einnig fluttu tveir nemendur skólans erindi, þau Edda Sól Óladóttir og Magnús Geir Björgvinsson.
Viðburðir Fræðsla