85. ársþing USVH var haldið í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka 14. apríl síðastliðinn og sá Umf. Grettir um skipulagningu þess í ár. Fundarstjóri þingsins var Júlíus Guðni Antonsson og voru Sveinbjörg Rut Pétursdóttir formaður USVH og Anton Scheel Birgisson, framkvæmdastjóri USVH, fundarritarar þingsins.
65. ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ), fór fram í Skógarseli dagana 10. – 11. apríl sl. Freyr Ólafsson gaf ekki kost á sér áfram í embætti formanns og urðu því formannsskipti í sambandinu.