Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Heiðurshöll ÍSÍ
Yfirlýsing
Í tilefni af viðtali Fréttablaðsins við fyrrum iðkanda í Skautafélagi Akureyrar vilja Skautafélag Akureyrar, Skautasamband Íslands (ÍSS), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) koma eftirfarandi á framfæri:
Íþróttahreyfingin getur ekki fjallað efnislega um einstök mál af þessu tagi á opinberum vettvangi.
Mikilvægt er að taka fram að umrætt mál er í farvegi innan hreyfingarinnar undir forystu Skautafélags Akureyrar með aðkomu Skautasambandsins, ÍBA og ÍSÍ.
Breytingar gerðar á reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ, fimmtudaginn 28. nóvember sl. voru samþykktar breytingar á reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ, en eins og kemur fram í reglugerðinni þá ber að endurskoða hana árlega.SKÍ og LH færast upp um afreksflokk
Í reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ kemur fram að sjóðurinn skuli árlega flokka sérsambönd í þrjá afreksflokka út frá viðmiðum sem fjallað er um í reglugerð sjóðsins.Dagur sjálfboðaliðans
Ár hvert er 5. desember helgaður sjálfboðaliðum um allan heim.
Fyrirlestur um lyfjamál
Á dögunum flutti Lasse Bækken frá Lyfjaeftirliti Noregs (Anti-Doping Norway) erindi undir yfirskriftinni „Vegabréf íþróttamannsins“. Fyrirlesturinn fór fram í húsakynnum ÍSÍ og var á vegum Lyfjaeftirlits Íslands.
Nýr birtingamáti á tölfræði íþróttahreyfingarinnar
ÍSÍ birtir árlega tölfræði úr starfsskýrslum sem allar einingar innan ÍSÍ skila til sambandsins um umfang íþróttahreyfingarinnar, kynjaskiptingu, aldursdreifingu, íþróttagreinar og íþróttahéruð.
Í ár var farin önnur og nútímalegri leið við að vinna úr þeim gögnum sem skilað var inn á rafrænu formi á þessu ári um iðkun íþrótta ársins 2018. Gögn voru grein í Microsoft Excel og Power BI sem gefur möguleika á gagnvirkri og fjölbreyttari framsetningu á niðurstöðunum.
Dagur í lífi Ásdísar spjótkastara
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari og þrefaldur Ólympíufari, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf á morgun, fimmtudaginn 5. desember. Ásdís mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.
Afmælishóf Ólympíufara nk. fimmtudag
Afmælishóf Ólympíufara 2019 fer fram nk. fimmtudag, 5. desember 2019, kl.17 í salarkynnum ÍSÍ í Laugardal.
Hádegisfyrirlestur á vegum Lyfjaeftirlits Íslands
Á morgun, þriðjudaginn 3. desember, mun Lasse Bækken frá Lyfjaeftirliti Noregs (Anti-Doping Norway) halda hádegisfyrirlestur undir yfirskriftinni: Vegabréf íþróttamannsins.
Ársskýrsla Afrekssjóðs ÍSÍ 2019
Í ársskýrslunni er fjallað um styrkveitingar fyrir árið 2019 og uppgjör styrkja vegna ársins 2018. Heildarúthlutun styrkja til sérsambanda ÍSÍ vegna verkefna ársins 2019 var 452,9 m.kr. en fyrir árið 2018 var endanleg úthlutun rúmar 339 m.kr. Í ársskýrslunni er fjallað um áherslur sjóðsins í styrkveitingum og sundurliðað hvernig hver áhersluliður er styrktur í þremur flokkum sérsambanda. 27 sérsambönd ÍSÍ hlutu styrk vegna verkefna ársins 2019 og er heildarkostnaður verkefna þeirra tæpar 1.350 m.kr. Afrekssjóður ÍSÍ styrkir að meðaltali um þriðjung kostnaðar við þetta afreksstarf, en í skýrslunni má sjá hvernig sérsambönd fjármagna með öðrum hætti þann kostnað sem eftir stendur.
Bogfimisamband Íslands stofnað
Stofnþing Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag, 1. desember 2019. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 33 talsins.