Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

31.05.2019

Yngsti keppandi Íslands á Smáþjóðaleikunum 2019

Yngsti keppandi Íslands á Smáþjóðaleikunum 2019Yngsti keppandi Íslands á leikunum að þessu sinni er Agnes Brynjarsdóttir keppandi í borðtennis. Agnes var 12 ára, átta mánaða og sjö daga þegar leikarnir hér í Svartfjallalandi voru settir. Hún er þó ekki yngsti keppandi sem keppt hefur fyrir hönd Íslands á Smáþjóðaleikum því á allra fyrstu leikunum, í San Marínó árið 1985 var Magnús Már Ólafssson sundmaður 12 ára, fjögurra mánaða og 23 daga við setningu leikanna.
Nánar ...
31.05.2019

Ásdís Rósa endurkjörin formaður HNÍ

Ásdís Rósa endurkjörin formaður HNÍÁrsþing Hnefaleikasambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, 20. maí. Ásdís Rósa Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður sambandsins en aðrir í stjórn sambandsins eru Árni Stefán Ásgeirsson varaformaður, Áslaug Rós Guðmundsdóttir ritari, Birna Árnadóttir gjaldkeri, Sólveig Harpa Helgadóttir meðstjórnandi, Rúnar Svavarsson meðstjórnandi og Steinunn Inga Sigurðardóttir meðstjórnandi.
Nánar ...
31.05.2019

Andri Stefánsson á sínum tíundu Smáþjóðaleikum

Andri Stefánsson á sínum tíundu SmáþjóðaleikumAndri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, er þaulreyndur fararstjóri sem er nú á sínum 10. Smáþjóðaleikum fyrir hönd ÍSÍ. Hann á sæti í tækninefnd Smáþjóðaleikanna og hefur annast eftirlit fyrir nefndina með borðtenniskeppninni á leikunum og einnig verið hluti af fararstjórn ÍSÍ á leikunum.
Nánar ...
31.05.2019

Þrjú gullverðlaun í frjálsum í dag

Þrjú gullverðlaun í frjálsum í dagFrjálsíþróttakeppninni á Smáþjóðaleikunum 2019 lauk í Svartfjallalandi í dag með frábærum árangri Íslands. Þrjú gullverðlaun, fjögur silfururverðlaun og sex bronsverðlaun hjá íslensku keppendunum á lokadegi. Einnig voru margir að bæta sinn besta árangur, stelpurnar í 4×100 metra boðhlaupi settu aldursflokkamet í flokki 18-19 ára og 20-22 ára og Dagbjartur Daði Jónsson setti aldursflokkamet 20-22 ára í spjótkasti.
Nánar ...
31.05.2019

Stelpurnar sigruðu Mónakó í körfu

Stelpurnar sigruðu Mónakó í körfuEinn leikur fór fram í dag í keppni kvenna á Smáþjóðaleikunum en íslenska liðið lék gegn liði Mónakó. Stelpurnar okkar tóku sér fyrsta leikhlutann í að hitna og koma sér í gang en staðan var 26:23 fyrir Ísland. Í öðrum leikhluta var allt annað að sjá vörn okkar stelpna sem settu í lás og sóttu mun ákveðnara hinum megin á vellinum. Staðan í hálfleik 51:28 og ljóst í hvað stefndi. Næsti leikhluti fór 18:13 og sá síðasti 22:18 og öruggur 91:59 sigur í höfn.
Nánar ...
31.05.2019

Keppni lokið hjá borðtennisfólki

Keppni lokið hjá borðtennisfólkiNú er keppni lokið hjá borðtennisliði Íslands á Smáþjóðaleikunum. Í dag fór fram einliðaleikur og spiluðu Magnús Gauti Úlfarsson og Ingi Darvis Rodriguez karlamegin og Aldís Rún Lárusdóttir og Agnes Brynjarsdóttir kvennamegin. Magnús Gauti var næst því að komast upp úr riðli en hann fór inn í lokaleikinn sinn í dag með einn sigur og eitt tap. Að lokum fór það svo að allir keppendur duttu úr leik og hafa því lokið keppni.
Nánar ...
31.05.2019

Svekkjandi tap gegn Mónakó

Svekkjandi tap gegn MónakóKarlalandsliðið í blaki mætti Mónakó í dag á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Hvorugt liðanna hafði unnið leik á mótinu til þessa.
Nánar ...
31.05.2019

Íslenskir dómarar að störfum

Íslenskir dómarar að störfum Sjö íslenskir dómarar eru á Smáþjóðaleikunum. Þeir eru Jón Ólafur Valdimarsson og Sævar Már Guðmundsson í blaki, Davíð Tómas Tómasson og Jóhannes Páll Friðriksson í körfuknattleik, Haraldur Hreggviðsson, Sarah Buckley og Sigurþór Sævarsson í sundi. Körfuknattleiksdómararnir dvelja í bænum Bar þar sem körfuknattleikskeppni leikanna fer fram. Aðrir dómarar gista í leikaþorpinu þar sem þátttakendur dvelja.
Nánar ...