Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

26.03.2021

Ungmennafélag Akureyrar Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Ungmennafélag Akureyrar Fyrirmyndarfélag ÍSÍUngmennafélag Akureyrar (UFA) tók við viðurkenningu fyrir að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ þann 25. mars sl. Það var Kristín Sóley Björnsdóttir sem veitti viðurkenningunni viðtöku en hún stjórnaði vinnu við gerð gæðahandbókar um starfsemi félagsins sem liggur til grundvallar viðurkenningunni.
Nánar ...
24.03.2021

Hertar takmarkanir á samkomubanni vegna Covid-19

Hertar takmarkanir á samkomubanni vegna Covid-19Vegna hópsýkinga og fjölgunar á Covid-19 smitum í samfélaginu þá hafa stjórnvöld gripið til hertra sóttvarnaaðgerða. Hópsýkingarnar eru allar af völdum breska afbrigðis kórónaveirunnar sem er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og veldur frekar alvarlegum veikindum. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að hertar aðgerðir taka nú til barna allt frá grunnskólaaldri þar sem sýnt þykir að breska afbrigðið veldur meiri einkennum hjá eldri börnum en önnur afbrigði veirunnar.
Nánar ...
23.03.2021

Gullmerki ÍSÍ veitt á ársþingi HSÞ

Gullmerki ÍSÍ veitt á ársþingi HSÞ13. ársþing Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ) var haldið í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn laugardaginn 20. mars 2021. Alls voru 56 þingfulltrúar mættir til þings af 82.
Nánar ...
19.03.2021

Málþing um trans og intersex fólk og íþróttir

Málþing um trans og intersex fólk og íþróttirÍþróttafræði- og lagadeildir Háskólans í Reykjavík ásamt Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), Jafnréttisstofu og Samtökunum 78 standa fyrir málþingi fimmtudaginn 25. mars klukkan 12:00-13:30 um trans fólk, intersex fólk og íþróttir frá ýmsum sjónarhornum.
Nánar ...
19.03.2021

Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar

Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingarHöfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar. Um það eru mörg dæmi í knattspyrnu og fleiri íþróttum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands hafa í samstarfi unnið fræðslumyndbönd tengd þessu mikilvæga viðfangsefni. Annars vegar er um að ræða grafísk myndbönd með mikilvægum upplýsingum, m.a. um fyrstu viðbrögð, og hins vegar viðtalsmyndbönd þar sem knattspyrnufólkið Heiðrún Sara Guðmundsdóttir og Elfar Árni Aðalsteinsson deila reynslusögum (Viðtalsmyndböndin má sjá á samfélagsmiðlum KSÍ, t.d. hér).
Nánar ...
18.03.2021

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga Úthlutað hefur verið úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands á árinu 2020. Til úthlutunar að þessu sinni voru 95 milljónir króna af þeim 127 milljónum sem ætlaðar voru til keppnisferða ársins 2020.
Nánar ...
18.03.2021

Forvarnir gegn vöðvatognun

Forvarnir gegn vöðvatognunÍ mars 2021 voru haldnar rafrænar afreksbúðir ÍSÍ fyrir ungmenni á aldrinum 15-18 ára tilnefnd af sínum sérsamböndum. Stefán H. Stefánsson sjúkraþjálfari var með fyrirlestur um vöðvatognun þar sem hann fjallaði stuttlega um fræðileg atriði en aðal umfjöllunarefni var hvernig íþróttafólk getur nýtt sér forvarnir til að minnka möguleika á vöðvatognun.
Nánar ...
18.03.2021

Hjólreiðaþing 2021

Hjólreiðaþing 2021Hjólreiðaþing Hjólreiðasambands Íslands (HRÍ) fór fram 14. mars sl. í fundarsal ÍSÍ við Engjaveg. Fundurinn fór vel fram og mættir voru 26 þingfulltrúar frá 12 aðildarfélögum, þar af voru 2 þingfulltrúar á fjarfundi en ákveðið var að streyma fundinum fyrir þá sem ekki komust og einnig var streymt fyrir áhorf. Hafsteinn Pálsson, annar varaforseti ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.
Nánar ...
17.03.2021

Sóttvarnareglur uppfærðar

Sóttvarnareglur uppfærðarBúið er að uppfæra sóttvarnareglur sem gilda nú til 9. apríl 2021. Engar tilslakanir voru gerðar að þessu sinni en hert var á reglum er varða veitingasölu. Nú má einungis selja veitingar fyrir íþróttaviðburð en ekki á meðan viðburður stendur yfir eða í hléi. Einnig var skerpt á reglunum þegar kemur að blöndun hópa
Nánar ...
15.03.2021

54. Körfuknattleiksþing KKÍ

54. Körfuknattleiksþing KKÍKörfuknattleiksþing 2021fór fram rafrænt þann 13. mars sl. Fyrir þinginu lágu fyrir fimm tillögur, en allar tillögurnar má sjá hér á vefsíðu KKÍ. Hannes Sigurbjörn Jónsson var kosinn formaður til fjögurra ára.
Nánar ...