Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Jakob Jóhann og Anna Margrét til Ólympíu
Ertu nokkuð að gleyma þér?
Í dag lokar skráningarkerfi sjálfboðaliða á Smáþjóðaleikum 2015 formlega. ÍSÍ hvetur þá sem ekki hafa skráð sig til að skrá sig í dag á heimasíðu leikanna. www.iceland2015.isNý afreksstefna SÍL samþykkt á ársþingi sambandsins
Ársþing Siglingasambands Íslands var haldið laugardaginn 21.febrúar síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingforseti var Gísli Árni Eggertsson frá ÍTR og fyrrum stjórnarmaður SÍL. Mæting á þingið var heldur slök en fyrir þinginu lá meðal annars að samþykkja nýja afreksstefnu fyrir siglingaíþróttina. Var hún samþykkt með breytingum en einnig var samþykkt mótaskrá fyrir árið 2015 og dagsetningar fyrir árið 2016. Geir endurkjörinn formaður KSÍ
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fór fram á Hótel Hilton Nordica laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn. Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður sambandsins til næstu tveggja ára, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, en Geir fékk að þessu sinni mótframboð frá Jónasi Ými Jónassyni. Engar breytingar urðu á stjórn sambandsins að þessu sinni. Lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 heitir Blossi
Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni var lukkudýri Smáþjóðaleikanna gefið nafnið Blossi. ÍSÍ efndi til nafnasamkeppni í janúar um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleika 2015. Þátttökurétt áttu allir 4.—7. bekkir í grunnskólum landsins. 100 dagar til stefnu
Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni eru tvær nýjar myndir úr myndaröðinni „Náttúrulegur kraftur“ birtar til viðbótar við þær níu sem nú þegar hafa verið birtar.
Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
Þing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) var haldið í golfskála Golfklúbbs Vatnsleysustrandar í gærkvöldi. Fyrir þinginu lá hefðbundin dagskrá og að henni lokinni fóru fulltrúar allra aðildarfélaga ÍS stuttlega yfir starfsemi sinna félaga á nýliðnu ári. Gunnar Jóhannesson var endurkjörinn formaður ÍS. Friðrik Einarsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.Hnefaleikafélag Reykjaness fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Hnefaleikafélag Reykjaness fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag laugardaginn 14. febrúar síðastliðinn á móti sem félagið hélt í Keflavík þennan dag. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Birni Snævari Björnssyni viðurkenninguna ásamt fána fyrirmyndarfélaga. Á myndinni eru frá vinstri þau Margrét Guðrún Sævarsdóttir hnefaleikamaður Reykjanesbæjar 2014, Björn Snævar Björnsson og Sigríður Jónsdóttir.Heiðurshöll ÍSÍ
Ásgeir Sigurvinsson og Pétur Guðmundsson voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á athöfninni Íþróttamaður ársins 2014 í janúar sl. Nú er hægt að sjá myndbönd um þeirra feril á heimasíðu ÍSÍ.
Undirritun samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika
Forseti ÍSÍ Lárus L. Blöndal, borgarstjóri Dagur B. Eggertsson og mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson undirrituðu í gær samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika 2015. Undirritunin fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.Myndarlegur stuðningur ríkis og Reykjavíkurborgar vegna Smáþjóðaleikanna 2015
Forseti ÍSÍ Lárus L. Blöndal, borgarstjóri Dagur B. Eggertsson og mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson undirrituðu í dag samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleika 2015. Undirritunin fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Framlag Reykjavíkurborgar er allt að 20 m.kr. í formi leigukostnaðar vegna íþróttamannvirkja og um 200 m.kr. vegna endurnýjunar og viðhalds áhalda í keppnismannvirkjum. Framlag ríkisins vegna Smáþjóðaleikanna á fjárlögum 2014 og 2015 er alls 100 m.kr.Hestamannafélagið Sleipnir fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Hestamannafélagið Sleipnir fékk endurnbýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ 30. janúar síðastliðinn. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Magnúsi Ólasyni viðurkenninguna á aðalfundi félagsins á Selfossi. Á myndinni eru þau Sigríður og Magnús.