Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

30.07.2013

Heimsmeistara fagnað

Heimsmeistara fagnaðÍslensku keppendurnir sem tóku þátt í Heimsmeistaramóti fatlaðra íþróttamanna í Lyon í Frakklandi eru komin aftur til landsins. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands fatlaðra og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ tóku á móti íslenska hópnum í Leifsstöð á sunnudag og færðu þeim blóm.
Nánar ...
25.07.2013

ÍSÍ fagnar sérstöku framlagi til Afrekssjóðs ÍSÍ

ÍSÍ fagnar sérstöku framlagi til Afrekssjóðs ÍSÍ Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Afrekssjóði ÍSÍ sérstakt framlag í formi tveggja milljón króna styrks árlega fram að Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 til að styðja við Anítu Hinriksdóttur afreksíþróttakonu í frjálsíþróttum og verkefni Frjálsíþróttasambands Íslands. ÍSÍ fagnar framlaginu sem á örugglega eftir að nýtast vel í undirbúningi fyrir helstu verkefni sem framundan eru hjá Anítu á næstu árum.
Nánar ...
22.07.2013

Anítu fagnað við heimkomu

Anítu fagnað við heimkomuAníta Hinriksdóttir, Heimsmeistari U-18 og Evrópumeistari U-20 í 800 m hlaupi, kom til landsins í gærkvöldi eftir að hafa unnið til þessarra tveggja titla í vikunni. Fjölskylda og vinir Anítu tóku á móti henni í Keflavík en þar voru einnig mættir Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Benóný Jónsson varaformaður Frjálsíþróttasambands Íslands til að færa henni blóm og hamingjuóskir í tilefni þessa frábæra árangurs. Meðfylgjandi mynd er tekin við það tækifæri af Benóný, Anítu og Lárusi. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ óskar Anítu og fjölskyldu, Gunnari Páli þjálfara hennar og Frjálsíþróttasambandi Íslands hjartanlega til hamingju með afrekin.
Nánar ...
18.07.2013

Einstaklingskeppni Lífshlaupsins

Einstaklingskeppni Lífshlaupsins er í gangi allt árið og geta einstaklingar skráð sig til leiks hvenær sem er.Sem hvatningu veitir Íþrótta- og Ólympíusambandið brons-, silfur-, gull- og platínumerki í verðlaun til þeirra sem náð hafa ákveðnum fjölda daga í hreyfingu. Í einstaklingsskráningunni er hægt að halda dagbók um t.d. matarvenjur og líkamsástand. 11. júlí fengu þeir einstaklingar sem hafa hreyft sig daglega frá 2. febrúar, eða í 156 daga a.m.k. 30 mínútur á dag, silfurmerki Lífshlaupsins. Nú hafa 410 einstaklingar fengið sent til sín bronsmerki. Nánari upplýsingar um einstaklingskeppnina er að finna á www.lifshlaupid.is eða með því að smella hér.
Nánar ...
17.07.2013

Handknattleiksdeild Fjölnis fyrirmyndardeild ÍSÍ

Handknattleiksdeild Fjölnis fyrirmyndardeild ÍSÍÞann 30 júní síðastliðinn fékk handknattleiksdeild Umf. Fjölnis í Grafarvogi afhenta viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndardeild. Deildin hefur mótað sér stefnu og uppfyllir nú þau skilyrði sem sett eru af hálfu ÍSÍ. Það var Sigríður Jónsdóttir formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti forystumönnum deildarinnar viðurkenninguna að Dalhúsum í Grafarvogi að viðstöddu fjölmenni. Viðurkenningin er veitt til fjögurra ára í senn og þarf þá að sækja um endurnýjun til ÍSÍ. Á myndinni eru þau Sigríður Jónsdóttir frá ÍSÍ og Kristján Gaukur Kristjánsson formaður handknattleiksdeildar Fjölnis ásamt hluta af hópi iðkenda deildarinnar.
Nánar ...
16.07.2013

Síðustu leikar dr. Jacques Rogge í embætti

Síðustu leikar dr. Jacques Rogge í embættiDr. Jacques Rogge, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar - IOC, mun láta af embætti forseta síðar á þessu ári. Sumarleikar Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar, sem fara í Utrecht í Hollandi þessa dagana eru síðustu leikarnir sem Rogge mætir til sem forseti IOC og af því tilefni var haldin látlaus athöfn honum til heiðurs í Ólympíuþorpi 1 í Utrecht.
Nánar ...
14.07.2013

Fánaberi Íslands á EYOF 2013

Fánaberi Íslands á EYOF 2013Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni fer Setningarhátíð Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fram kl. 20:00 í kvöld á Galgenwaard Stadium í Utrecht í Hollandi.
Nánar ...
14.07.2013

Forseti ÍSÍ í heimsókn á EYOF

Forseti ÍSÍ í heimsókn á EYOFLárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, heimsótti í dag Ólympíuþorpið í Utrecht, þar sem íslensku þátttakendurnir á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar dvelja.
Nánar ...
14.07.2013

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sett í dag

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sett í dagSumarleikar Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar verða settir formlega kl. 20:00 í dag á Galgenwaard Stadium í Utrecht í Hollandi. Íslenski hópurinn kom til Utrecht upp úr hádegi í gær og hefur komið sér vel fyrir í Ólympíuþorpinu.
Nánar ...
12.07.2013

Breytingar á stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Breytingar á stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands ÍslandsVið fráfall Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ 19. júní sl. tók Lárus L. Blöndal varaforseti ÍSÍ við embætti forseta ÍSÍ, eins og lög ÍSÍ kveða á um. Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær var síðan endurskipað í embætti stjórnar sambandsins. Helga Steinunn Guðmundsdóttir var skipuð í embætti varaforseta og Sigríður Jónsdóttir í embætti ritara. Gunnar Bragason verður eftir sem áður gjaldkeri ÍSÍ.
Nánar ...
10.07.2013

Sumarleikar Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar framundan

Sumarleikar Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar - EYOF 2013 hefjast 14. júlí næstkomandi í Utrecht í Hollandi. ÍSÍ sendir 19 ungmenni til hátíðarinnar til keppni í fimm íþróttagreinum, þ.e. fimleikum, frjálsíþróttum, júdó, sundi og tennis. Þátttakendur á sumarleikunum að þessu sinni verða hátt á þriðja þúsund frá 49 Evrópuþjóðum en alls verður keppt í níu íþróttagreinum á leikunum.
Nánar ...